Sjávarútvegsráðuneyti

1138/2005

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 717, 6. október 2000, um veiðar á gulllaxi. - Brottfallin

1. gr.

2. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Gulllaxveiðar eru aðeins heimilar á svæði undan Vestur- og Suðurlandi vestan 19°30¢ 00 V og sunnan 66°00¢ 00 N á dýpra vatni en 220 föðmum. Á svæði milli 19°30¢ 00 V og 14°00¢ 00 V eru veiðar jafnframt heimilar sunnan línu sem dregin er um eftirgreinda punkta:

1. 63° 19¢ 00 N - 19° 30¢ 00 V
2. 63° 20¢ 00 N - 19° 20¢ 00 V
3. 63° 15¢ 00 N - 19° 00¢ 00 V
4. 63° 11¢ 00 N - 18° 10¢ 00 V
5. 63° 11¢ 00 N - 17° 53¢ 00 V
6. 63° 16¢ 00 N - 17° 10¢ 00 V
7. 63° 20¢ 00 N - 16° 35¢ 00 V
8. 63° 22¢ 00 N - 16° 29¢ 00 V
9. 63° 24¢ 00 N - 16° 00¢ 00 V
10. 63° 28¢ 00 N - 15° 41¢ 00 V
11. 63° 29¢ 00 N - 15° 30¢ 00 V
12. 63° 34¢ 00 N - 15° 00¢ 00 V
13. 63° 35¢ 00 N - 14° 42¢ 00 V
14. 63° 45¢ 00 N - 14° 12¢ 00 V
15. 63° 49¢ 00 N - 14° 00¢ 00 V

Ofangreind heimild veitir skipinu aðeins rétt til að stunda veiðar á þeim svæðum sem því er heimilt að stunda veiðar með botn- og flotvörpu, samkvæmt 5. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með þeim takmörkunum sem slíkum veiðum eru settar í sérstökum reglugerðum og skyndilokunum.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 1. janúar 2006.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 19. desember 2005.

F. h. r.

Jón B. Jónasson.

Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica