Fara beint í efnið

Prentað þann 28. apríl 2024

Breytingareglugerð

1132/2023

Reglugerð um (22.) breytingu á reglugerð nr. 577/2013 um snyrtivörur.

1. gr.

Við 7. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr töluliður, svohljóðandi:

49) Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2195 frá 10. nóvember 2022 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 að því er varðar notkun á bútýlhýdroxýtólúeni, Acid Yellow 3, hómósalati og HAA299 í snyrtivörur og um leiðréttingu á þeirri reglugerð að því er varðar notkun á resorsínóli í snyrtivörur, sem vísað er til í tölulið 1a, XVI. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2023, þann 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 40 frá 25. maí 2023, bls. 274-280.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtalinni EES-gerð:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2195 frá 10. nóvember 2022 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1223/2009 að því er varðar notkun á bútýlhýdroxýtólúeni, Acid Yellow 3, hómósalati og HAA299 í snyrtivörur og um leiðréttingu á þeirri reglugerð að því er varðar notkun á resorsínóli í snyrtivörur.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 7. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 16. október 2023.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.