Fara beint í efnið

Prentað þann 2. maí 2024

Breytingareglugerð

1124/2023

Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 454/2022 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2235 frá 16. desember 2020 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrirmyndir að opinberum vottorðum og fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og o

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 11. tl., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1471 frá 18. ágúst 2021 um breytingu og leiðréttingu á framkvæmdarreglugerðum (ESB) 2020/2235 og (ESB) 2020/2236 að því er varðar tilvísanir til landsráðstafana sem gerðar eru til að takmarka áhrif tiltekinna sjúkdóma í lagardýrum ásamt skrám yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr og vörur til Sambandsins.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1471 sem nefnd er í 1. gr. er birt á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 11/2023.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 23. október 2023.

Svandís Svavarsdóttir.

Iðunn María Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.