Fara beint í efnið

Prentað þann 2. maí 2024

Breytingareglugerð

1123/2023

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 637/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2236 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af lagardýrum og af tilteknum lagardýraafurðum og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð (dýraheilbrigði).

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 3. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/516 frá 8. mars 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2236 að því er varðar fyrirmynd að dýraheilbrigðisvottorði vegna komu sendinga af lagardýrum, sem eru ætlaðar fyrir tilteknar lagareldisstöðvar, til sleppingar út í náttúruna eða í öðrum tilgangi, inn í Sambandið, þó ekki til beinnar neyslu.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/516 sem nefnd er í 1. gr. er birt í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 10/2023.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum og lögum nr. 71/2008, um fiskeldi.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 23. október 2023.

Svandís Svavarsdóttir.

Iðunn María Guðjónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.