Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

1123/2012

Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur tannsmiða og klínískra tannsmiða til að hljóta starfsleyfi.

I. KAFLI Almenn ákvæði.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um tannsmiði og klíníska tannsmiði sem hafa starfsleyfi landlæknis skv. 2. og 5. gr.

II. KAFLI Starfsleyfi sem tannsmiður.

2. gr. Starfsheiti.

Rétt til að kalla sig tannsmið og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi landlæknis.

3. gr. Skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis.

Leyfi skv. 2. gr. má veita þeim sem lokið hafa BS-prófi í tannsmíði frá tannlæknadeild heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.

Einnig má veita starfsleyfi á grundvelli menntunar frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Sviss. Um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi tannsmiðs sem uppfyllir skilyrði tilskipunar 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, með síðari breytingum, fer samkvæmt reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum, nr. 461/2011, eða samkvæmt Norðurlandasamningi um sameiginlegan norrænan vinnumarkað fyrir ákveðnar heilbrigðisstéttir og dýralækna, nr. 36/1993, sbr. breytingu nr. 6/2001.

Þá er heimilt að veita starfsleyfi þeim sem lokið hafa sambærilegu prófi frá menntastofnun í ríki utan EES eða Sviss sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað.

Um frekari skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis fer skv. 13. gr.

4. gr. Umsagnir.

Áður en leyfi er veitt skv. 2. gr. á grundvelli menntunar utan Íslands skv. 3. mgr. 3. gr. skal landlæknir leita umsagnar tannlæknadeildar heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands um það hvort umsækjandi uppfylli skilyrði um menntun skv. 1. mgr. 3. gr. fyrir veitingu starfsleyfis sem tannsmiður.

Landlækni er heimilt að leita umsagnar annarra aðila eftir þörfum.

III. KAFLI Starfsleyfi sem klínískur tannsmiður.

5. gr. Starfsheiti.

Rétt til að kalla sig klínískan tannsmið og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi landlæknis.

6. gr. Skilyrði fyrir starfsleyfi sem klínískur tannsmiður.

Til að tannsmiður geti átt rétt á að öðlast starfsleyfi sem klínískur tannsmiður skal hann uppfylla eftirtaldar kröfur:

  1. hann skal hafa starfsleyfi sem tannsmiður skv. 2. gr. og
  2. hann skal hafa lokið viðurkenndu framhaldsnámi í klínískri tannsmíði frá háskóla sem viðurkenndur er af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað og
  3. hann skal hafa starfað við klínískar tannsmíðar undir handleiðslu að loknu prófi skv. 2. tölul., sem svarar til að minnsta kosti eins árs í fullu starfi. Sé starfshlutfall lægra, lengist starfstíminn sem því nemur.

Um frekari skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis fer skv. 13. gr.

7. gr. Umsagnir.

Áður en leyfi er veitt skv. 5. gr. skal landlæknir leita umsagnar tannlæknadeildar heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands um hvort umsækjandi uppfylli skilyrði skv. 6. gr. fyrir veitingu starfsleyfis sem klínískur tannsmiður.

Landlækni er heimilt að skipa sérstaka mats- og umsagnarnefnd til að meta umsóknir um starfsleyfi klínískra tannsmiða.

Landlækni er heimilt að leita umsagnar annarra aðila eftir þörfum.

IV. KAFLI Réttindi og skyldur.

8. gr. Faglegar kröfur og ábyrgð.

Tannsmiður skv. 2. gr. og klínískur tannsmiður skv. 5. gr. skulu sýna sjúklingum virðingu og sinna störfum sínum af árvekni og trúmennsku og í samræmi við þær faglegu kröfur sem gerðar eru til stéttarinnar á hverjum tíma.

Tannsmiði skv. 2. gr. og klínískum tannsmiði skv. 5. gr. ber að þekkja skyldur sínar og virða siðareglur stéttarinnar, viðhalda þekkingu sinni og faglegri færni og tileinka sér nýjungar er varða starfið.

Tannsmiður skv. 2. gr. og klínískur tannsmiður skv. 5. gr. skulu þekkja lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisstarfsmenn og heilbrigðisþjónustu og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli eftir því sem við á.

Tannsmiður skv. 2. gr. og klínískur tannsmiður skv. 5. gr. bera ábyrgð á starfi sínu í samræmi við þá menntun sem þeir hafa hlotið.

Tannsmiður skv. 2. gr. hefur ekki heimild til að vinna í munnholi.

Klínískum tannsmið skv. 5. gr. er heimilt að starfa við töku móta, mátun, smíði og viðhald heilgóma og tannparta, sbr. þó 11. gr.

Tannsmiður skv. 2. gr. og klínískur tannsmiður skv. 5. gr. skulu virða faglegar takmarkanir sínar og leita eftir aðstoð eða vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns eftir því sem nauðsynlegt er, svo sem ef þeir telja sig ekki geta veitt honum viðeigandi heilbrigðisþjónustu.

9. gr. Upplýsingaskylda og færsla sjúkraskrár.

Um upplýsingaskyldu tannsmiðs skv. 2. gr. og klínísks tannsmiðs skv. 5. gr. gagnvart sjúklingi fer samkvæmt ákvæðum laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997.

Um skyldu tannsmiðs skv. 2. gr. og klínísks tannsmiðs skv. 5. gr. til að veita landlækni upplýsingar, meðal annars vegna eftirlits og til gerðar heilbrigðisskýrslna, fer samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.

Tannsmiður skv. 2. gr. og klínískur tannsmiður skv. 5. gr. skulu, eftir því sem við á, færa sjúkraskrá samkvæmt ákvæðum laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, og reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim.

10. gr. Aðstoðarmenn og nemar.

Tannsmiður skv. 2. gr. og klínískur tannsmiður skv. 5. gr. bera ábyrgð á því að aðstoðarmenn og nemar, sem starfa undir þeirra stjórn, hafi næga hæfni og þekkingu og fái nauðsynlegar leiðbeiningar og tilsögn til að inna af hendi störf sem þeir fela þeim.

11. gr. Takmörkun á starfsréttindum klínískra tannsmiða.

Sé sjúklingur með eina eða fleiri eigin tennur í munnholi og tannsmiður telur, að lokinni athugun og eftir atvikum mótatöku, að smíða þurfi tannpart í viðkomandi skal tannsmiður, áður en eiginleg smíði tannpartsins hefst, vísa sjúklingi til tannlæknis til skoðunar á tönnum, munnholi og kjálkum sem og til nauðsynlegrar forvinnu.

Gengið skal frá samstarfi klínísks tannsmiðs og tannlæknis um smíði tannparta skriflega áður en eiginleg smíði hefst af hálfu klínísks tannsmiðs og skal gerð smíðaáætlun sem klíníski tannsmiðurinn og tannlæknirinn semja um sín á milli.

Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. getur klínískur tannsmiður endursmíðað tannparta í sjúkling án þess að vísa honum til tannlæknis ef tannlæknir hefur skoðað sjúkling á síðustu tólf mánuðum og endursmíði fer fram í samræmi við áður gerða smíðaáætlun.

12. gr. Trúnaður og þagnarskylda.

Tannsmiður og klínískur tannsmiður skulu gæta fyllstu þagmælsku um allt það sem þeir komast að í starfi sínu um heilsufar sjúklings, ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð ásamt öðrum persónulegum upplýsingum. Þetta gildir ekki bjóði lög annað eða rökstudd ástæða er til þess að rjúfa þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar.

Samþykki sjúklings eða forráðamanns, ef við á, leysir tannsmið og klínískan tannsmið undan þagnarskyldu.

Þagnarskylda samkvæmt þessari grein nær ekki til atvika sem tannsmiði og klínískum tannsmiði ber að tilkynna um samkvæmt öðrum lagaákvæðum. Í þeim tilvikum ber tannsmiði og klínískum tannsmiði skylda til að koma upplýsingum um atvik á framfæri við þar til bær yfirvöld.

Um trúnaðar- og þagnarskyldu tannsmiðs og klínísks tannsmiðs gilda jafnframt ákvæði laga um réttindi sjúklinga, ákvæði laga um sjúkraskrár og önnur lög eftir því sem við á.

V. KAFLI Ýmis ákvæði.

13. gr. Frekari skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis sem tannsmiður og klínískur tannsmiður.

Umsækjandi um starfsleyfi sem tannsmiður, skv. 2. gr., og klínískur tannsmiður, skv. 5. gr., frá ríki utan EES og Sviss sem Ísland hefur ekki samið við um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi skulu meðal annars leggja fram gögn um ríkisfang, innihald náms og námslengd, ásamt prófskírteini, starfsleyfi ef starfsgreinin er löggilt í því landi sem umsækjandi kemur frá, fyrirhuguð störf hér á landi svo og önnur gögn og vottorð sem landlæknir telur nauðsynleg vegna útgáfu starfsleyfis.

Áður en umsókn um starfsleyfi er tekin til efnislegrar meðferðar þarf eftir atvikum að liggja fyrir staðfest afrit umsóknar um atvinnu- og dvalarleyfi ásamt undirrituðum ráðningarsamningi.

Heimilt er að gera kröfu um að umsækjandi búi yfir kunnáttu í íslensku og hafi þekkingu á íslenskri heilbrigðislöggjöf svo og öðrum lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem talin eru nauðsynleg til að geta starfað sem tannsmiður og klínískur tannsmiður, einkum vegna öryggis og samskipta við sjúklinga.

Hafi að mati landlæknis ekki verið sýnt fram á að nám umsækjanda uppfylli kröfur skv. 1. mgr. 3. gr. eða 6. gr. að teknu tilliti til starfsreynslu er heimilt að krefjast þess að umsækjandi gangist undir próf sem sýni fram á að hann búi yfir þeirri faglegu þekkingu og hæfni sem krafist er af tannsmiði og klínískum tannsmiði. Viðeigandi menntastofnun skal skipuleggja próf fyrir umsækjanda í samráði við landlækni.

Starfsleyfi er gefið út við komu umsækjenda til starfa hér á landi.

14. gr. Gjaldtaka.

Um gjaldtöku vegna útgáfu starfsleyfis fer skv. 10. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.

Um gjaldtöku vegna hvers konar umsýslu landlæknis vegna umsókna um starfsleyfi til viðbótar gjaldi skv. 1. mgr. og vegna prófa í faglegri þekkingu og færni fer samkvæmt reglugerð um gjaldtöku vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi heilbrigðisstarfsmanna, nr. 951/2012.

15. gr. Almenn ákvæði.

Ákvæði laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, svo og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli gilda eftir því sem við á um tannsmiði.

16. gr. Tannsmiðir með eldri starfsréttindi.

Tannsmiðir með sveinspróf, meistararéttindi og klínískir tannsmiðir sem öðlast hafa starfsréttindi fyrir gildistöku reglugerðar þessarar halda þeim réttindum óskertum.

17. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5., 8., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, öðlast gildi 1. janúar 2013. Frá sama tíma fellur brott reglugerð um starfsréttindi tannsmiða, nr. 904/2000, og reglur um takmörkun á starfsréttindum tannsmiða, nr. 937/2000.

Velferðarráðuneytinu, 11. desember 2012.

Guðbjartur Hannesson.

Vilborg Ingólfsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.