Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 1. jan. 2021

1121/2019

Reglugerð um fjárhæðir bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2020.

1. gr.

Fjárhæðir bóta samkvæmt III. og VI. kafla laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og greiðslur samkvæmt 63. gr. sömu laga, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2020:

Lífeyristryggingar kr. á mánuði kr. á ári
Ellilífeyrir, skv. 1. mgr. 23. gr. 256.789 3.081.468
Hálfur ellilífeyrir, skv. 2. mgr. 23. gr. 128.395 1.540.734
Örorkulífeyrir, skv. 4. mgr. 18. gr. 48.108 577.296
Örorkustyrkur, skv. 1. mgr. 19. gr. 35.565 426.780
Örorkustyrkur, skv. 2. mgr. 19. gr. 48.108 577.296
Barnalífeyrir, skv. 6. mgr. 20. gr. 35.565 426.780
Aldurstengd örorkuuppbót (100%), skv. 2. mgr. 21. gr. 48.108 577.296
Tekjutrygging, skv. 3. mgr. 22. gr. 154.058 1.848.696
Annað kr. á dag kr. á mánuði kr. á ári
Ráðstöfunarfé, skv. 8. mgr. 48. gr. 77.084 925.008
Dagpeningar utan stofnunar, skv. 9. mgr. 48. gr. 3.744
Fyrirframgreiðsla meðlags, skv. 1. mgr. 63. gr. 35.565 426.780

2. gr.

Fjárhæðir bóta samkvæmt lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2020:

kr. á mánuði kr. á ári
Mæðra- og feðralaun með tveimur börnum, skv. 2. mgr. 2. gr. 10.296 123.552
Mæðra- og feðralaun með þremur börnum
eða fleiri, skv. 2. mgr. 2. gr. 26.769 321.228
Barnalífeyrir, skv. 1. mgr. 3. gr. 35.565 426.780
Umönnunargreiðslur (100%), skv. 1. mgr. 4. gr. 192.433 2.309.196
Makabætur og umönnunarbætur (80%), skv. 5. gr. 161.732 1.940.784
Dánarbætur, skv. 1. mgr. 6. gr. 52.974 635.688
Dánarbætur, skv. 2. mgr. 6. gr. 39.682 476.184
Endurhæfingarlífeyrir, skv. 1. mgr. 7. gr. 48.108 577.296
Heimilisuppbót, skv. 2. mgr. 8. gr. 64.889 778.668
Heimilisuppbót, skv. 3. mgr. 8. gr. 52.073 624.876
Uppbót vegna reksturs bifreiðar, skv. 2. mgr. 10. gr. 17.781 213.372

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2020. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1202/2018, um fjárhæðir bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2019.

Félagsmálaráðuneytinu, 13. desember 2019.

Ásmundur Einar Daðason.

Gunnhildur Gunnarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.