Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Breytingareglugerð

1117/2021

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1040/2021 um endurgreiðslu kostnaðar vegna sýnatöku til greiningar á SARS-CoV-2 veirunni með hraðprófum.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir orðunum "með hraðprófum" í 1. mgr. kemur: hér á landi.
  2. Í staðinn fyrir "2. mgr." í 2. mgr. kemur: 1. mgr.

2. gr.

Í staðinn fyrir orðið "fyrirtækis" í 2. máls. 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: aðila.

3. gr.

Á undan "3. gr. a reglugerðarinnar" í c-lið 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. mgr.

4. gr.

Í staðinn fyrir orðið "fyrirtæki" í 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar kemur: aðilar.

5. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í staðinn fyrir orðið "Fyrirtækjum" í 1. mgr. kemur: Aðilum.
  2. Í staðinn fyrir orðið "fyrirtæki" í 2. mgr. kemur: aðilar.

6. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum og 12. og 18. gr. sóttvarnalaga, nr. 19/1997, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 29. september 2021.

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.