Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Breytingareglugerð

1089/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 393/2019 um stuðning við útgáfu bóka á íslensku.

1. gr.

Við 4. gr. reglugerðarinnar, bætist eftirfarandi stafliður:

  1. Allar tekjur vegna auglýsinga og kynninga skulu reiknast til frádráttar þegar endurgreiðsluhæfur kostnaður vegna bókar er ákvarðaður.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 11. gr. laga um stuðning við útgáfu bóka á íslensku nr. 130/2018, öðlast þegar gildi.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 7. október 2020.

Lilja D. Alfreðsdóttir.

Páll Magnússon.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.