Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 1. maí 2020

1088/2012

Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur félagsráðgjafa og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi.

I. KAFLI Almenn ákvæði.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um félagsráðgjafa sem hafa starfsleyfi og sérfræðileyfi landlæknis skv. 2. og 5. gr.

II. KAFLI Starfsleyfi.

2. gr. Starfsheiti.

Rétt til að kalla sig félagsráðgjafa og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi landlæknis.

3. gr. Skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis.

Leyfi skv. 2. gr. má veita þeim sem lokið hafa MA-prófi í félagsráðgjöf frá félagsráðgjafardeild félagsvísindasviðs Háskóla Íslands.

Einnig má veita starfsleyfi á grundvelli menntunar frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Sviss. Um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi félagsráðgjafa sem uppfyllir skilyrði tilskipunar 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, með síðari breytingum, fer samkvæmt reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum, nr. 461/2011.

Þá er heimilt að veita starfsleyfi þeim sem lokið hafa sambærilegu prófi frá menntastofnun í ríki utan EES eða Sviss sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað.

Um frekari skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis fer skv. 12. gr.

4. gr. Umsagnir.

Áður en leyfi er veitt skv. 2. gr. á grundvelli menntunar utan Íslands skv. 3. mgr. 3. gr. skal landlæknir leita umsagnar félagsráðgjafardeildar félagsvísindasviðs Háskóla Íslands um það hvort umsækjandi, uppfylli skilyrði um menntun skv. 1. mgr. 3. gr. fyrir veitingu starfsleyfis.

Landlækni er heimilt að leita umsagnar annarra aðila eftir þörfum.

III. KAFLI Sérfræðileyfi í félagsráðgjöf.

5. gr. Sérfræðileyfi.

Rétt til að kalla sig sérfræðing á sérsviði félagsráðgjafar og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem hefur fengið til þess leyfi landlæknis.

6. gr. Skilyrði fyrir sérfræðileyfi.

Sérfræðileyfi má veita á skilgreindum sérsviðum félagsráðgjafar. Skilyrði er að sérfræðinám umsækjanda sé skilgreint innan þess sérsviðs sem umsókn hans um sérfræðileyfi tekur til. Viðkomandi sérsvið skal standa á traustum fræðilegum grunni og eiga sér samsvörun á viðurkenndum alþjóðlegum vettvangi.

Til að félagsráðgjafi geti átt rétt á að hljóta sérfræðileyfi skv. 5. gr. skal hann uppfylla eftirtaldar kröfur:

  1. hann skal hafa starfsleyfi sem félagsráðgjafi hér á landi skv. 2. gr. og
  2. hann skal hafa lokið meistaraprófi eða doktorsprófi í félagsráðgjöf á viðkomandi sérsviði eða sambærilegu framhaldsnámi frá viðurkenndum háskóla og
  3. hann skal hafa starfað við félagsráðgjöf að loknu prófi skv. 2. tölul., sem svarar til að minnsta kosti tveggja ára í fullu starfi á því sérsviði sem umsókn hans um sérfræðileyfi tekur til. Sé starfshlutfall lægra lengist starfshlutfall sem því nemur. Til frádráttar geta komið allt að tólf mánuðir í fullu starfi ef viðkomandi hefur starfað samhliða doktorsnámi sínu á viðkomandi sérsviði og
  4. hann skal hafa hlotið handleiðslu hjá viðurkenndum aðila á starfstíma.

Heimilt er að tilgreina áherslusvið sem viðkomandi hefur sérhæft sig í innan skilgreindra sérsviða.

Um frekari skilyrði fyrir veitingu sérfræðileyfis fer skv. 12. gr.

7. gr. Umsókn og umsagnir.

Umsókn um sérfræðileyfi í félagsráðgjöf, ásamt gögnum sem staðfesta menntun og starfsreynslu og öðrum nauðsynlegum fylgiskjölum, skal senda til landlæknis.

Áður en sérfræðileyfi er veitt skv. 5. gr. skal landlæknir leita umsagnar félagsráðgjafardeildar félagsvísindasviðs Háskóla Íslands um hvort umsækjandi uppfylli skilyrði skv. 6. gr.

Landlækni er heimilt að skipa sérstaka mats- og umsagnarnefnd til að meta umsóknir um sérfræðileyfi.

Landlækni er heimilt að leita umsagnar annarra aðila eftir þörfum.

IV. KAFLI Réttindi og skyldur.

8. gr. Faglegar kröfur og ábyrgð.

Félagsráðgjafi skal sýna þeim sem hann veitir þjónustu virðingu og sinna störfum sínum af árvekni og trúmennsku og í samræmi við þær faglegu kröfur sem gerðar eru til stéttarinnar á hverjum tíma.

Félagsráðgjafa ber að þekkja skyldur sínar og virða siðareglur stéttarinnar, viðhalda þekkingu og faglegri færni og tileinka sér nýjungar er varða starfið.

Félagsráðgjafi skal þekkja lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisstarfsmenn, heilbrigðisþjónustu, málefni fatlaðs fólks og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli eftir því sem við á.

Félagsráðgjafi ber ábyrgð á þeirri félagsráðgjöf, greiningu, meðferð og forvörnum sem hann veitir.

Félagsráðgjafi skal virða faglegar takmarkanir sínar og leita eftir aðstoð eða vísa þeim sem hann veitir þjónustu til annars heilbrigðisstarfsmanns eftir því sem nauðsynlegt er, svo sem ef hann telur sig ekki geta veitt viðeigandi þjónustu.

9. gr. Upplýsingaskylda og færsla sjúkraskrár.

Um upplýsingaskyldu félagsráðgjafa gagnvart þeim sem hann veitir þjónustu fer samkvæmt ákvæðum laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, og öðrum lögum og stjórnvaldsfyrirmælum eftir því sem við á.

Um skyldu félagsráðgjafa til að veita landlækni upplýsingar, meðal annars vegna eftirlits og til gerðar heilbrigðisskýrslna, fer samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.

Félagsráðgjafi skal, eftir því sem við á, færa sjúkraskrá samkvæmt ákvæðum laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, og reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim.

10. gr. Nemar.

Félagsráðgjafi ber ábyrgð á því að nemar, sem honum er falið að veita leiðsögn, hafi næga hæfni og þekkingu og fái nauðsynlegar leiðbeiningar og tilsögn til að inna af hendi störf sem hann felur þeim.

11. gr. Trúnaður og þagnarskylda.

Félagsráðgjafi skal gæta fyllstu þagmælsku um allt það sem hann kemst að í starfi sínu um heilsufar þess sem hann veitir þjónustu, ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð ásamt öðrum persónulegum upplýsingum. Þetta gildir ekki bjóði lög annað eða rökstudd ástæða er til þess að rjúfa þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar.

Samþykki þess sem hann veitir þjónustu eða forráðamanns, ef við á, leysir félagsráðgjafa undan þagnarskyldu.

Þagnarskylda samkvæmt þessari grein nær ekki til atvika sem félagsráðgjafa ber að tilkynna um samkvæmt öðrum lagaákvæðum. Í þeim tilvikum ber félagsráðgjafa skylda til að koma upplýsingum um atvik á framfæri við þar til bær yfirvöld.

Um trúnaðar- og þagnarskyldu félagsráðgjafa gilda jafnframt ákvæði laga um réttindi sjúklinga, ákvæði laga um sjúkraskrár og önnur lög eftir því sem við á.

V. KAFLI Ýmis ákvæði.

12. gr. Frekari skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis og sérfræðileyfis.

Umsækjandi um starfsleyfi sem félagsráðgjafi skv. 2. gr. og sérfræðileyfi í félagsráðgjöf skv. 5. gr. frá ríki utan EES og Sviss sem Ísland hefur ekki samið við um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi skal meðal annars leggja fram gögn um ríkisfang, innihald náms og námslengd, ásamt prófskírteini, starfsleyfi ef starfsgreinin er löggilt í því landi sem umsækjandi kemur frá, fyrirhuguð störf hér á landi svo og önnur gögn og vottorð sem landlæknir telur nauðsynleg vegna útgáfu starfsleyfis.

Áður en umsókn um starfsleyfi er tekin til efnislegrar meðferðar þarf eftir atvikum að liggja fyrir staðfest afrit umsóknar um atvinnu- og dvalarleyfi ásamt undirrituðum ráðningarsamningi.

Heimilt er að gera kröfu um að umsækjandi búi yfir kunnáttu í íslensku og hafi þekkingu á íslenskri heilbrigðislöggjöf, lögum um málefni fatlaðs fólks svo og öðrum lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem talin eru nauðsynleg til að geta starfað sem félagsráðgjafi, einkum vegna öryggis og samskipta við þann sem nýtur þjónustu félagsráðgjafa.

Hafi að mati landlæknis ekki verið sýnt fram á að nám umsækjanda uppfylli kröfur skv. 1. mgr. 3. gr. eða 6. gr. að teknu tilliti til starfsreynslu er heimilt að krefjast þess að umsækjandi gangist undir próf sem sýni fram á að hann búi yfir þeirri faglegu þekkingu og hæfni sem krafist er af félagsráðgjafa og félagsráðgjafa með sérfræðileyfi. Viðeigandi menntastofnun skal skipuleggja prófið í samráði við landlækni.

Starfsleyfi og sérfræðileyfi er gefið út við komu umsækjanda til starfa hér á landi.

13. gr. Gjaldtaka.

Um gjaldtöku vegna útgáfu starfsleyfis og sérfræðileyfis fer skv. 10. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.

Um gjaldtöku vegna hvers konar umsýslu landlæknis vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi, til viðbótar gjaldi skv. 1. mgr. og vegna prófa í faglegri þekkingu og færni fer samkvæmt reglugerð um gjaldtöku vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi heilbrigðisstarfsmanna, nr. 951/2012.

14. gr. Almenn ákvæði.

Ákvæði laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, laga um málefni fatlaðs fólks, nr. 59/1992 svo og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli gilda að öðru leyti um félagsráðgjafa.

14. gr. a. Gildi eldri leyfa.

Þeir sem hlotið hafa starfsleyfi sem félagsráðgjafar samkvæmt lögum nr. 95/1990, um félagsráðgjöf, með síðari breytingum, og sérfræðileyfi samkvæmt reglugerð nr. 555/1999, um sérfræðileyfi í félagsráðgjöf, með síðari breytingum, halda þeim réttindum óskertum.

15. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi sem sett er með stoð í 5., 8., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, öðlast gildi 1. janúar 2013. Frá sama tíma fellur brott reglugerð um sérfræðileyfi í félagsráðgjöf, nr. 555/1999, með síðari breytingum.

Ákvæði til bráðabirgða.

Félagsráðgjafa sem við gildistöku reglugerðar þessarar hefur hafið sérnám samkvæmt reglugerð um veitingu sérfræðileyfis í félagsráðgjöf nr. 555/1999, er heimilt að haga námi sínu í samræmi við ákvæði hennar. Þeir sem hefja sérnám eftir gildistöku reglugerðar þessarar skulu haga náminu samkvæmt ákvæðum hennar.

Þrátt fyrir ákvæði 3. og 6. gr. er landlækni heimilt til 1. maí 2021 að veita þeim starfsleyfi sem lokið hafa prófi samkvæmt lögum nr. 95/1990, um félagsráðgjöf, með síðari breytingum, og sérfræðileyfi samkvæmt reglugerð nr. 555/1999, um sérfræðileyfi í félagsráðgjöf, með síðari breytingum, og hafa viðhaldið kunnáttu sinni með því að hafa starfað við greinina frá því að framangreindu námi lauk.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.