Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 1. maí 2020

1087/2012

Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur hnykkja (kírópraktora) og skilyrði til að hljóta starfsleyfi.

I. KAFLI Almenn ákvæði.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um hnykkja (kírópraktora) sem hafa starfsleyfi landlæknis skv. 2. gr.

II. KAFLI Starfsleyfi.

2. gr. Starfsheiti.

Rétt til að kalla sig hnykki (kírópraktor) og starfa sem slíkur hér á landi hefur sá einn sem fengið hefur til þess leyfi landlæknis.

3. gr. Skilyrði fyrir veitingu starfsleyfis.

Leyfi skv. 2. gr. má veita þeim sem hefur lokið að minnsta kosti fjögurra ára námi í kírópraktík frá háskóla sem hefur viðurkenningu frá ECCE ef námið er stundað í Evrópu (The European Council On Chiropractic Education) eða frá sambærilegri stofnun eða ráði sé námið stundað í annarri heimsálfu. Ennfremur skal háskólinn vera viðurkenndur sem slíkur af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað.

Jafnframt þarf umsækjandi að hafa lokið tólf mánaða starfsnámi undir leiðsögn að námi loknu.

Einnig má veita starfsleyfi á grundvelli menntunar frá ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og Sviss. Um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi hnykkis (kírópraktors) sem uppfyllir skilyrði tilskipunar 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, með síðari breytingum, fer samkvæmt reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum, nr. 461/2011, eða samkvæmt Norðurlandasamningi um sameiginlegan norrænan vinnumarkað fyrir ákveðnar heilbrigðisstéttir og dýralækna, nr. 36/1993, sbr. breytingu nr. 6/2001.

Þá er heimilt að veita starfsleyfi þeim sem lokið hafa sambærilegu prófi frá menntastofnun í ríki utan EES eða Sviss sem viðurkennd er sem slík af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi og heilbrigðisyfirvöldum þess ríkis þar sem námið var stundað.

Umsækjandi um starfsleyfi, skv. 2. gr., frá ríki utan EES og Sviss sem Ísland hefur ekki samið við um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi skal meðal annars leggja fram gögn um ríkisfang, innihald náms og námslengd, ásamt prófskírteini, starfsleyfi ef starfsgreinin er löggilt í því landi sem umsækjandi kemur frá, fyrirhuguð störf hér á landi svo og önnur gögn og vottorð sem landlæknir telur nauðsynleg vegna útgáfu starfsleyfis.

Áður en umsókn um starfsleyfi er tekin til efnislegrar meðferðar þarf eftir atvikum að liggja fyrir staðfest afrit umsóknar um atvinnu- og dvalarleyfi ásamt undirrituðum ráðningarsamningi.

Heimilt er að gera kröfu um að umsækjandi búi yfir kunnáttu í íslensku og hafi þekkingu á íslenskri heilbrigðislöggjöf svo og öðrum lögum og stjórnvaldsfyrirmælum sem talin eru nauðsynleg til að geta starfað sem hnykkir (kírópraktor), einkum vegna öryggis og samskipta við sjúklinga.

Hafi að mati landlæknis ekki verið sýnt fram á að nám umsækjanda uppfylli kröfur skv. 1. mgr. að teknu tilliti til starfsreynslu er landlækni heimilt að krefjast þess að umsækjandi gangist undir próf sem sýni fram á að hann búi yfir þeirri faglegu þekkingu og hæfni sem krafist er af hnykki (kírópraktor).

Landlæknir skal í samráði við Kírópraktorafélag Íslands skipuleggja próf fyrir umsækjanda.

Starfsleyfi skv. 3. mgr. er gefið út við komu umsækjanda til starfa hér á landi.

4. gr. Umsagnir.

Áður en leyfi er veitt skv. 2. gr. skal landlæknir leita umsagnar hjá Kírópraktorafélagi Íslands um það hvort umsækjandi uppfylli skilyrði um menntun skv. 1. mgr. 3. gr. til að hljóta starfsleyfi.

Landlækni er heimilt að leita umsagnar annarra aðila eftir þörfum.

III. KAFLI Réttindi og skyldur.

5. gr. Faglegar kröfur og ábyrgð.

Hnykkir (kírópraktor) skal sýna þeim sem hann veitir þjónustu virðingu og sinna störfum sínum af árvekni og trúmennsku og í samræmi við þær faglegu kröfur sem gerðar eru til stéttarinnar á hverjum tíma.

Hnykki (kírópraktor) ber að þekkja skyldur sínar og virða siðareglur stéttarinnar, viðhalda þekkingu sinni og faglegri færni og tileinka sér nýjungar er varða starfið.

Hnykkir (kírópraktor) skal þekkja lög og reglugerðir sem gilda um heilbrigðisstarfsmenn og heilbrigðisþjónustu og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli eftir því sem við á.

Hnykkir (kírópraktor) ber ábyrgð á þeirri meðferð sem hann veitir.

Hnykkir (kírópraktor) skal virða faglegar takmarkanir sínar og leita eftir aðstoð eða vísa sjúklingi til annars heilbrigðisstarfsmanns eftir því sem nauðsynlegt er, svo sem ef hann telur sig ekki geta veitt honum viðeigandi heilbrigðisþjónustu.

6. gr. Upplýsingaskylda og færsla sjúkraskrár.

Um upplýsingaskyldu hnykkis (kírópraktors) gagnvart þeim sem hann veitir þjónustu fer samkvæmt ákvæðum laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997.

Um skyldu hnykkis (kírópraktors) til að veita landlækni upplýsingar, meðal annars vegna eftirlits og til gerðar heilbrigðisskýrslna, fer samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.

Hnykkir (kírópraktor) sem veitir sjúklingi meðferð og ráðgjöf skal færa sjúkraskrá samkvæmt ákvæðum laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, og reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim.

7. gr. Trúnaður og þagnarskylda.

Hnykkir (kírópraktor) skal gæta fyllstu þagmælsku um allt það sem hann kemst að í starfi sínu um heilsufar sjúklings, ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð ásamt öðrum persónulegum upplýsingum. Þetta gildir ekki bjóði lög annað eða rökstudd ástæða er til þess að rjúfa þagnarskyldu vegna brýnnar nauðsynjar.

Samþykki sjúklings eða forráðamanns, ef við á, leysir hnykki (kírópraktor) undan þagnarskyldu.

Þagnarskylda samkvæmt þessari grein nær ekki til atvika sem hnykki (kírópraktor) ber að tilkynna um samkvæmt öðrum lagaákvæðum. Í þeim tilvikum ber hnykki (kírópraktor) skylda til að koma upplýsingum um atvik á framfæri við þar til bær yfirvöld.

Um trúnaðar- og þagnarskyldu hnykkis (kírópraktors) gilda jafnframt ákvæði laga um réttindi sjúklinga, ákvæði laga um sjúkraskrár og önnur lög eftir því sem við á.

IV. KAFLI Ýmis ákvæði.

8. gr. Gjaldtaka.

Um gjaldtöku vegna útgáfu starfsleyfis fer skv. 10. gr. laga um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991.

Um gjaldtöku vegna hvers konar umsýslu landlæknis vegna umsókna um starfsleyfi til viðbótar gjaldi skv. 1. mgr. og vegna prófa í faglegri þekkingu og færni fer samkvæmt reglugerð um gjaldtöku vegna umsókna um starfsleyfi og sérfræðileyfi heilbrigðisstarfsmanna, nr. 951/2012.

9. gr. Almenn ákvæði.

Ákvæði laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, laga um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007, laga um sjúkraskrár, nr. 55/2009, laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, laga um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997, svo og önnur lög og stjórnvaldsfyrirmæli gilda að öðru leyti um hnykkja (kírópraktora).

9. gr. a. Gildi eldri leyfa.

Þeir sem hlotið hafa starfsleyfi samkvæmt reglugerð nr. 60/1990, um menntun, réttindi og skyldur hnykkja, halda þeim réttindum óskertum.

10. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5., 30. og 31. gr. laga um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012, öðlast gildi 1. janúar 2013. Frá sama tíma fellur brott reglugerð um menntun, réttindi og skyldur hnykkja nr. 60/1990, með síðari breytingum.

Ákvæði til bráðabirgða.

Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. er landlækni heimilt til 1. maí 2021 að veita þeim starfsleyfi sem lokið hafa námi samkvæmt reglugerð nr. 60/1990, um menntun, réttindi og skyldur hnykkja, og hafa viðhaldið kunnáttu sinni með því að hafa starfað við greinina frá því að framangreindu námi lauk.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.