Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

1085/2019

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1030/2017 um vottun á jafnlaunakerfum fyrirtækja og stofnana á grundvelli staðalsins ÍST 85.

1. gr.

Í stað heitisins "Einkaleyfastofu" í 4. gr. reglugerðarinnar kemur: Hugverkastofunnar.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað dagsetningarinnar "31. desember 2019" í 1. og 2. málsl. 2. mgr. kemur: 31. desember 2020.
  2. Í stað heitisins "Einkaleyfastofunnar" í 1., 6. og 7. málsl. 3. mgr. kemur: Hugverkastofunnar.
  3. Í stað orðsins "þrjá" í 6. málsl. 3. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: sex.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 11. mgr. 19. gr. sem og 33. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008, með síðari breytingum sem og skv. 1. mgr. 4. gr. laga um faggildingu o.fl., nr. 24/2006, með síðari breytingum. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Forsætisráðuneytinu, 5. desember 2019.

Katrín Jakobsdóttir.

Ragnhildur Arnljótsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.