REGLUGERÐ FRAMKVÆMDASTJÓRNARINNAR (EB) nr. 633/2007
frá 7. júní 2007
um kröfur vegna beitingar samskiptareglna skeytasendinga vegna flugs sem eru notaðar við tilkynningu, samræmingu og yfirfærslu upplýsinga um flug milli flugstjórnardeilda
(Texti sem varðar EES)
FRAMKVÆMDASTJÓRN EVRÓPUSAMBANDSINS HEFUR,
með hliðsjón af stofnsáttmála Evrópubandalagsins,
með hliðsjón af reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 552/2004 frá 10. mars 2004 um rekstrarsamhæfi evrópska netsins fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar (rekstrarsamhæfisreglugerðin) (F1F), einkum 1. mgr. 3. gr.,
með hliðsjón af reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 549/2004 frá 10. mars 2004 um setningu rammaákvæða um að koma á samevrópsku loftrými (rammareglugerðin) (F2F), einkum
2. mgr. 8. gr.,
og að teknu tilliti til eftirfarandi:
1) Flugstjórnardeildir skiptast á upplýsingum með því að nota fluggagnavinnslukerfi sem eru notuð við tilkynningu, samræmingu og yfirfærslu upplýsinga um flug og við samræmingu milli borgaralegra yfirvalda og hermálayfirvalda. Þessi upplýsingaskipti skulu styðjast við viðeigandi og samhæfðar samskiptareglur til að tryggja rekstrarsamhæfi.
2) Evrópustofnun um öryggi flugleiðsögu (Eurocontrol) hefur fengið umboð, í samræmi við 1. mgr. 8. gr. reglugerðar (EB) nr. 549/2004, til að þróa kröfur um samskiptareglur skeytasendinga vegna flugs sem eru notaðar við tilkynningu, samræmingu og yfirfærslu upplýsinga um flug. Reglugerð þessi er byggð á skýrslunni sem gefin var út í því sambandi 31. mars 2005.
3) Staðall Evrópustofnunar um öryggi flugleiðsögu fyrir skipti á fluggögnum fylgir með í viðauka við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2082/2000 frá 6. september 2000 um samþykkt á stöðlum
Evrópustofnunar um öryggi flugleiðsögu og breytingu á tilskipun 97/15/EB um samþykkt á stöðlum sem Evrópustofnun um öryggi flugleiðsögu hefur samið og breytingu á tilskipun ráðsins 93/65/EBE (F3F) og er þar með lögboðið að nota staðalinn innan Bandalagsins við kaup á nýjum fluggagnavinnslukerfum. Þar sem reglugerð (EB) nr. 2082/2000 var felld úr gildi frá og með 20. október 2005 er nauðsynlegt að uppfæra löggjöf Bandalagsins til að tryggja samræmi í viðkomandi ákvæðum reglna.
4) Sífellt erfiðara og kostnaðarsamara verður að viðhalda fjarskipta- og hugbúnaði sem samræmast staðli Evrópustofnunar um öryggi flugleiðsögu að því er varðar skipti á fluggögnum. Því skal samþykkja nýjan, viðeigandi staðal til að styðja við skipti á fluggögnum.
5) TCP- og IP-samskiptareglurnar (TCP/IP) eru, eins og er, taldar heppilegasti grundvöllurinn til að uppfylla samskiptakröfur að því er varðar skipti á fluggögnum milli flugstjórnardeilda.
6) Þessi reglugerð skal taka til beitingu samskiptareglna skeytasendinga vegna flugs sem eru notaðar við upplýsingaskipti í samræmi við reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1032/2006 frá 6. júlí 2006 um kröfur um sjálfvirk kerfi til að skiptast á fluggögnum að því er varðar tilkynningu, samræmingu og yfirfærslu upplýsinga um flug milli flugstjórnardeilda (F4F).
7) Þessi reglugerð skal ekki taka til hernaðaraðgerða og herþjálfunarflugs eins og um getur í 2. mgr. 1. gr. reglugerðar (EB) nr. 549/2004.
8) Aðildarríkin hafa skuldbundið sig, með yfirlýsingu um hernaðarleg málefni í tengslum við samevrópska loftrýmið (F5F), að vinna saman að því að sjá til þess að allir notendur loftrýmis innan aðildarríkjanna beiti hugmyndinni um sveigjanlega notkun loftrýmis að fullu og með samræmdum hætti, að teknu tilliti til þarfa landsbundins herafla.
9) Beiting hugmyndarinnar um sveigjanlega notkun loftrýmis, eins og hún er skilgreind í 22. mgr. 2. gr. reglugerðar (EB) nr. 549/2004, krefst þess að komið verði á fót kerfi fyrir tímanleg skipti á fluggögnum milli flugumferðarþjónustudeilda og herflugumferðarstjórnardeilda.
10) Í samræmi við d-lið 3. mgr. 3. gr. reglugerðar (EB) nr. 552/2004 skal í framkvæmdarreglum um rekstrarsamhæfi lýsa sértækum aðferðum við samræmismat, sem nota skal til að meta annaðhvort samræmi eða nothæfi kerfishlutanna, sem og til sannprófunar á kerfum.
11) Í samræmi við 2. mgr. 10. gr. reglugerðar (EB) nr. 552/2004 er heimilt að ákvarða í viðkomandi framkvæmdarreglum um rekstrarsamhæfi hvenær beita megi grunnkröfum og bráðabirgðafyrirkomulagi.
12) Veita skal framleiðendum og veitendum flugleiðsöguþjónustu tíma til að þróa nýja kerfishluta og kerfi í samræmi við nýjar tæknilegar kröfur.
13) Ráðstafanirnar, sem kveðið er á um í þessari reglugerð, eru í samræmi við álit nefndar um samevrópskt loftrými sem komið var á fót skv. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 549/2004.
SAMÞYKKT REGLUGERÐ ÞESSA:
1. gr.
Efni og gildissvið
1. Í þessari reglugerð er mælt fyrir um kröfur um beitingu samskiptareglna skeytasendinga vegna flugs við upplýsingaskipti milli fluggagnavinnslukerfa sem eru notaðar við tilkynningu, samræmingu og yfirfærslu upplýsinga um flug milli flugstjórnardeilda og að því er varðar samræmingu milli borgaralegra yfirvalda og hermálayfirvalda í samræmi við reglugerð (EB) nr. 1032/2006. 2. Þessi reglugerð gildir um:
a) fjarskiptakerfi sem styðja verklagsreglur fyrir samræmingu milli flugstjórnardeilda með því að nota fyrirkomulag jafningjafjarskipta og veita almennri flugumferð þjónustu,
b) fjarskiptakerfi sem styðja verklagsreglur fyrir samræmingu milli flugumferðarþjónustudeilda og herflugumferðarstjórnardeilda með því að nota fyrirkomulag jafningjafjarskipta.
2. gr.
Skilgreiningar
Í þessari reglugerð gilda skilgreiningarnar sem settar voru fram í reglugerð (EB) nr. 549/2004.
Eftirfarandi skilgreiningar skulu jafnframt gilda:
1. „samskiptareglur skeytasendinga vegna flugs“: samskiptareglur fyrir rafræn samskipti sem fela í sér skeytasnið, kóða þeirra fyrir gagnaskipti og reglur um runur sem notaðar eru fyrir upplýsingaskipti milli fluggagnavinnslukerfa,
2. „fluggagnavinnslukerfi“: sá hluti flugumferðarþjónustukerfisins sem tekur á móti flugáætlunargögnum og skeytum sem tengjast þeim, vinnur úr þeim sjálfvirkt og dreifir þeim til vinnustöðva flugstjórnardeildanna,
3. „flugstjórnardeild“: ýmist flugstjórnarmiðstöð, aðflugsstjórnunardeild eða flugturn,
4. „vinnustöð“: húsbúnaður og tæknibúnaður þar sem starfsfólk flugumferðarþjónustunnar vinnur þau verkefni sem tengjast starfi þess,
5. „flugstjórnarmiðstöð“: deild sem var stofnuð til að veita stjórnuðu flugi flugstjórnarþjónustu á því flugstjórnarsvæði sem hún ber ábyrgð á,
6. „samræming milli borgaralegra yfirvalda og hermálayfirvalda“: samræming milli borgaralegra yfirvalda og hermálayfirvalda sem mega taka ákvarðanir og eru einhuga um hvernig eigi að framkvæma þær,
7. „flugumferðarþjónustudeild“: borgaraleg eða hernaðarleg deild sem er ábyrg fyrir að veita flugumferðarþjónustu,
8. „herflugumferðarstjórnardeild“: allar fastar eða hreyfanlegar herdeildir sem stjórna herflugumferð og/eða annast aðra starfsemi sem, vegna tiltekinna eiginleika sinna, krefst þess að loftrými sé tekið frá eða sett höft á það,
9. „fyrirkomulag jafningjafjarskipta“: fyrirkomulag sem komið er á milli tveggja flugstjórnardeilda eða milli flugumferðarþjónustudeilda og herflugumferðarstjórnardeilda þar sem hver aðili hefur sömu fjarskiptagetu að því er varðar upplýsingaskipti milli fluggagnavinnslukerfa og báðir aðilar geta átt upphafið að fjarskiptunum.
3. gr.
Beiting samskiptareglna skeytasendinga vegna flugs
1. Veitendur flugleiðsöguþjónustu skulu tryggja að kerfin, sem um getur í a-lið 2. mgr. 1. gr., beiti samskiptareglum skeytasendinga vegna flugs í samræmi við kröfur um rekstrarsamhæfi sem tilgreindar eru í I. viðauka.
2. Aðildarríkin skulu tryggja að kerfin, sem um getur í b-lið 2. mgr. 1. gr., noti samskiptareglur skeytasendinga vegna flugs í samræmi við kröfur um rekstrarsamhæfi sem tilgreindar eru í I. viðauka.
4. gr.
Samræmismat á kerfishlutum
Áður en EB-yfirlýsing um samræmi, sem um getur í 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 552/2004, er gefin út skulu framleiðendur kerfishluta þeirra kerfa, sem um getur í 2. mgr. 1. gr. þessarar reglugerðar, sem nota samskiptareglur skeytasendinga vegna flugs, meta hvort kerfishlutarnir séu í samræmi við kröfurnar í II. viðauka.
5. gr.
Sannprófun á kerfum
1. Veitendur flugleiðsöguþjónustu, sem geta sýnt fram á að þeir uppfylli þau skilyrði sem fram koma í III. viðauka, skulu sannprófa kerfin, sem um getur í a-lið 2. mgr. 1. gr., í samræmi við kröfurnar í A-hluta IV. viðauka.
2. Veitendur flugleiðsöguþjónustu, sem geta ekki sýnt fram á að þeir uppfylli skilyrðin í III. viðauka, skulu semja við tilkynntan aðila um að sannprófa kerfin sem um getur í a-lið 2. mgr. 1. gr. Þessi sannprófun skal framkvæmd í samræmi við kröfurnar í B-hluta IV. viðauka.
3. Aðildarríkin skulu tryggja að sannprófunin á kerfunum sem um getur í b-lið 2. mgr. 1. gr. sýni fram á að þessi kerfi séu í samræmi við kröfur þessarar reglugerðar um rekstrarsamhæfi.
6. gr.
Uppfylling ákvæða
Aðildarríkin skulu gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að ákvæði þessarar reglugerðar séu uppfyllt.
7. gr.
Bráðabirgðafyrirkomulag
Grunnkröfurnar, sem settar eru fram í II. viðauka við reglugerð (EB) nr. 552/2004, gilda þegar kerfi evrópska netsins fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar, sem um getur í 2. mgr. 1. gr. þessarar reglugerðar, er tekið í notkun frá 1. janúar 2009. Bráðabirgðafyrirkomulagið í 3. mgr. 10. gr. reglugerðar (EB) nr. 552/2004 gildir, eftir því sem við á, frá sama degi.
8. gr.
Gildistaka og beiting
Reglugerð þessi öðlast gildi á tuttugasta degi eftir að hún birtist í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins.
Hún kemur til framkvæmda 1. janúar 2009 fyrir öll kerfi evrópska netsins fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar, sem um getur í 2. mgr. 1. gr., sem tekin eru í notkun eftir þann dag.
Hún kemur til framkvæmda 20. apríl 2011 fyrir öll kerfi evrópska netsins fyrir rekstrarstjórnun flugumferðar, sem um getur í 2. mgr. 1. gr., sem eru í notkun fyrir þann dag.
Reglugerð þessi er bindandi í heild sinni og gildir í öllum aðildarríkjunum án frekari lögfestingar.
Gjört í Brussel 7. júní 2007.
Fyrir hönd framkvæmdastjórnarinnar,
Jacques BARROT
framkvæmdastjóri.
(1) Stjtíð. ESB L 96, 31.3.2004, bls. 26.
(2) Stjtíð. ESB L 96, 31.3.2004, bls. 1.
(3) Stjtíð. EB L 254, 9.10.2000, bls. 1. Reglugerðinni var breytt með reglugerð (EB) nr. 980/2002 (Stjtíð. EB L 150, 8.6.2002, bls. 38).
(4) Stjtíð. ESB L 186, 7.7.2006, bls. 27.
(5) Stjtíð. ESB L 96, 31.3.2004, bls. 9.
I. VIÐAUKI
Kröfur um rekstrarsamhæfi sem um getur í 3. gr.
1. Sérhvert jafneinindi fyrir skeytasendingar vegna flugs skal hafa kennimerki.
2. Auðkenningaraðgerð skal tryggja að fjarskipti geti einungis átt sér stað milli heimilaðra jafneininda fyrir skeytasendingar vegna flugs.
3. Stjórnunaraðgerð fyrir tengingar skal koma á og rjúfa tengingu milli jafneininda fyrir skeytasendingar vegna flugs þannig að fluggagnaflutningur geti einungis átt sér stað meðan tengingin varir.
4. Gagnaflutningsaðgerð sendir og tekur á móti fluggagnaskeytum milli tengdra jafneininda fyrir skeytasendingar vegna flugs.
5. Vöktunaraðgerð skal staðfesta áframhaldandi þjónustu tengingar milli jafneininda fyrir skeytasendingar vegna flugs.
6. Allar aðgerðir sem fram fara á milli jafneininda fyrir skeytasendingar vegna flugs skulu nota TCP-samskiptareglurnar ásamt 6. útg. af IP-samskiptareglunum.
II. VIÐAUKI
Kröfur um samræmismat á kerfishlutum skv. 4. gr.
1. Í sannprófuninni skal sýna fram á að kerfishlutarnir séu í samræmi við framkvæmd samskiptareglna skeytasendinga vegna flugs og gildandi kröfur þessarar reglugerðar um rekstrarsamhæfi meðan þeir eru starfræktir í prófunarumhverfi.
2. Framleiðandinn skal sjá um sannprófunarstörfin og einkum:
a) ákvarða viðeigandi prófunarumhverfi,
b) staðfesta að í prófunaráætluninni sé kerfishlutunum lýst í prófunarumhverfinu,
c) staðfesta að prófunaráætlunin nái yfir allar viðeigandi kröfur,
d) tryggja samræmi milli tæknigagnanna og prófunaráætlunarinnar og gæði þeirra,
e) skipuleggja fyrirkomulag prófunarinnar og starfsmannaúrræði í tengslum við hana ásamt uppsetningu og útfærslu prófunarverkvangsins,
f) annast skoðanir og prófanir eins og tilgreint er í prófunaráætluninni,
g) skrifa skýrslu þar sem niðurstöður skoðana og prófana eru settar fram.
3. Framleiðandinn skal sjá til þess að kerfishlutarnir, sem framkvæma samskiptareglur skeytasendinga vegna flugs og eru samþættir prófunarumhverfinu, séu í samræmi við gildandi kröfur þessarar reglugerðar um rekstrarsamhæfi.
4. Þegar sannprófun á samræmi kerfishluta er lokið á fullnægjandi hátt skal framleiðandinn, á eigin ábyrgð, gefa út EByfirlýsingu um samræmi kerfishlutanna og tilgreina þær kröfur úr þessari reglugerð sem þeir uppfylla ásamt tilheyrandi notkunarskilyrðum í samræmi við 3. lið III. viðauka við reglugerð (EB) nr. 552/2004.
III. VIÐAUKI
Skilyrði sem um getur í 5. gr.
1. Veitandi flugleiðsöguþjónustu verður að nota skýrslugjafaraðferðir innan fyrirtækisins sem tryggja og sýna fram á óhlutdrægni og sjálfstætt mat í tengslum við sannprófunarstörfin.
2. Veitandi flugleiðsöguþjónustu verður að tryggja að starfsfólkið, sem tekur þátt í sannprófunarferlunum, annist skoðanir í hvívetna af tæknilegri færni og faglegri ráðvendni og sé óháð öllum áhrifum og þrýstingi, einkum af efnahagslegum toga, sem gæti haft áhrif á mat þess eða niðurstöður skoðana, sérstaklega frá einstaklingum eða hópum einstaklinga sem niðurstöður skoðana hafa áhrif á.
3. Veitandi flugleiðsöguþjónustu verður að tryggja að starfsfólkið, sem tekur þátt í sannprófunarferlunum, hafi aðgang að þeim búnaði sem gerir því kleift að framkvæma nauðsynlegar skoðanir.
4. Veitandi flugleiðsöguþjónustu verður að tryggja að starfsfólkið, sem tekur þátt í sannprófunarferlunum, hafi trausta tækni- og starfsþjálfun, næga þekkingu á þeim kröfum sem gerðar eru við skoðanir sem það framkvæmir, næga starfsreynslu við slíkar aðgerðir og tilskilda kunnáttu í að útbúa yfirlýsingar, skrár og skýrslur til að sýna fram á að þessar sannprófanir hafi farið fram.
5. Veitandi flugleiðsöguþjónustu verður að tryggja að starfsfólkið, sem tekur þátt í sannprófunarferlunum, geti framkvæmt skoðanirnar af óhlutdrægni. Laun þess mega hvorki vera háð fjölda skoðana, sem framkvæmdar eru, né niðurstöðum þeirra.
IV. VIÐAUKI
A-hluti: Kröfur fyrir sannprófun kerfa skv. 1. mgr. 5. gr.
1. Sannprófun kerfa, sem framkvæma samskiptareglur skeytasendinga vegna flugs, skal sýna fram á að þessi kerfi séu í samræmi við kröfur þessarar reglugerðar um rekstrarsamhæfi í hermi sem endurspeglar hið raunverulega rekstrarumhverfi þessara kerfa.
2. Sannprófun kerfa, sem framkvæma samskiptareglur skeytasendinga vegna flugs, skal fara fram í samræmi við viðeigandi og viðurkenndar prófunaraðferðir.
3. Prófunartækin fyrir sannprófun kerfa, sem framkvæma samskiptareglur skeytasendinga vegna flugs, skulu hafa viðeigandi virkni til að tryggja að prófanirnar séu ítarlegar.
4. Sannprófun kerfa, sem framkvæma samskiptareglur skeytasendinga vegna flugs, skal hafa í för með sér að tækniskjalið innihaldi þætti, sem krafist er í 3. lið IV. viðauka við reglugerð (EB) nr. 552/2004, ásamt eftirfarandi:
a) lýsingu á framkvæmd samskiptareglna skeytasendinga vegna flugs,
b) skýrslu um skoðanir og prófanir sem búið var að framkvæma áður en kerfið var tekið í notkun.
5. Veitandi flugleiðsöguþjónustu skal sjá um sannprófunarstörfin og einkum:
a) ákvarða viðeigandi hermun rekstrar- og tækniumhverfis sem endurspeglar hið raunverulega rekstrarumhverfi,
b) staðfesta að prófunaráætlunin fyrir kerfið, sem verið er að prófa í hermi, sem endurspeglar hið raunverulega rekstrar- og tækniumhverfi, lýsi samþættingu samskiptareglna skeytasendinga vegna flugs,
c) staðfesta að prófunaráætlunin nái yfir allar kröfur þessarar reglugerðar um rekstrarsamhæfi,
d) tryggja samræmi milli tæknigagnanna og prófunaráætlunarinnar og gæði þeirra,
e) skipuleggja fyrirkomulag prófunarinnar og starfsmannaúrræði í tengslum við hana ásamt uppsetningu og útfærslu prófunarverkvangsins,
f) annast skoðanir og prófanir eins og tilgreint er í prófunaráætluninni,
g) skrifa skýrslu þar sem niðurstöður skoðana og prófana eru settar fram.
6. Veitandi flugleiðsöguþjónustu skal tryggja að framkvæmd samskiptareglna skeytasendinga vegna flugs, sem er samþætt kerfum í hermi sem endurspeglar hið raunverulega rekstrarumhverfi, uppfylli kröfur þessarar reglugerðar um rekstrarsamhæfi.
7. Þegar sannprófun á samræmi er lokið á fullnægjandi hátt skulu veitendur flugleiðsöguþjónustu útbúa EB-yfirlýsingu um sannprófun kerfa og leggja hana fyrir landsbundna eftirlitsyfirvaldið ásamt tækniskjölum skv. 6. gr. reglugerðar (EB) nr. 552/2004.
B-hluti: Kröfur fyrir sannprófun kerfa sem framkvæmdar eru skv. 2. mgr. 5. gr.
1. Sannprófun kerfa, sem framkvæma samskiptareglur skeytasendinga vegna flugs, skal sýna fram á að þessi kerfi séu í samræmi við kröfur þessarar reglugerðar um rekstrarsamhæfi í hermi sem endurspeglar hið raunverulega rekstrarumhverfi þessara kerfa.
2. Sannprófun kerfa, sem framkvæma samskiptareglur skeytasendinga vegna flugs, skal fara fram í samræmi við viðeigandi og viðurkenndar prófunaraðferðir.
3. Prófunartækin fyrir sannprófun kerfa, sem framkvæma samskiptareglur skeytasendinga vegna flugs, skulu hafa viðeigandi virkni til að tryggja að prófanirnar séu ítarlegar.
4. Sannprófun kerfa, sem framkvæma samskiptareglur skeytasendinga vegna flugs, skal hafa í för með sér að tækniskjalið innihaldi þætti, sem krafist er í 3. lið IV. viðauka við reglugerð (EB) nr. 552/2004, ásamt eftirfarandi:
a) lýsingu á framkvæmd samskiptareglna skeytasendinga vegna flugs,
b) skýrslu um skoðanir og prófanir sem búið var að framkvæma áður en kerfið var tekið í notkun.
5. Veitandi flugleiðsöguþjónustu skal ákvarða viðeigandi hermun á rekstrar- og tækniumhverfi sem endurspeglar hið raunverulega rekstrarumhverfi og skal láta tilkynntan aðila sjá um sannprófunarstörfin.
6. Tilkynntur aðili skal sjá um sannprófunarstörfin og einkum:
a) staðfesta að prófunaráætlunin fyrir kerfið, sem verið er að prófa í hermi sem endurspeglar hið raunverulega rekstrar- og tækniumhverfi, lýsi samþættingu samskiptareglna skeytasendinga vegna flugs,
b) staðfesta að prófunaráætlunin nái yfir allar kröfur þessarar reglugerðar um rekstrarsamhæfi,
c) tryggja samræmi milli tæknigagnanna og prófunaráætlunarinnar og gæði þeirra,
d) skipuleggja fyrirkomulag prófunarinnar og starfsmannaúrræði í tengslum við hana ásamt uppsetningu og útfærslu prófunarverkvangsins,
e) annast skoðanir og prófanir eins og tilgreint er í prófunaráætluninni,
f) skrifa skýrslu þar sem niðurstöður skoðana og prófana eru settar fram.
7. Tilkynntur aðili skal tryggja að framkvæmd samskiptareglna skeytasendinga vegna flugs, sem er samþætt kerfum í hermi sem endurspeglar hið raunverulega rekstrarumhverfi, uppfylli kröfur þessarar reglugerðar um rekstrarsamhæfi.
8. Þegar sannprófunarverkefnunum er lokið á fullnægjandi hátt skal tilkynntur aðili gefa út samræmisvottorð í tengslum við þau verkefni sem hann framkvæmdi.
9. Veitandi flugleiðsöguþjónustu skal síðan útbúa EB-yfirlýsingu um sannprófun kerfa og leggja hana fyrir landsbundna eftirlitsyfirvaldið, ásamt tækniskjölum, eins og krafist er í 6. gr. reglugerðar (EB) nr. 552/2004.