Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

1074/2016

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 975/2013 um manneldiskröfur varðandi aldinsafa og sambærilegar vörur.

1. gr.

Fyrirsögn 5. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Viðbættur sítrónusafi, súraldinsafi eða sýrustillar.

2. gr.

Við 3. tölulið 1. viðauka reglugerðarinnar bætist nýr liður, svohljóðandi:

- Plöntuprótín úr hveiti, baunum eða kartöflum til fellingar.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 18. og 31. gr. a laga um matvæli nr. 93/1995, með síðari breytingum. Hún er sett til innleiðingar á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1040/2014 frá 25. júlí 2014 um breytingu á tilskipun ráðsins 2001/112/EB varðandi aldinsafa og tilteknar álíka vörur til manneldis í því skyni að laga I. viðauka við hana að tækniframförum, sem felld var inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 12/2016, frá 5. febrúar 2016. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 6. desember 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.