Fara beint í efnið

Prentað þann 19. mars 2024

Breytingareglugerð

1065/2019

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 344/2013 um frjálsa þátttöku fyrirtækja og stofnana í umhverfisstjórnunarkerfi Evrópusambandsins (EMAS).

1. gr.

Við 9. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein sem orðast svo:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/2026 frá 19. desember 2018 um breytingu á IV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1221/2009 um frjálsa aðild fyrirtækja/stofnana að umhverfisstjórnunarkerfi Bandalagsins (EMAS), sem vísað er til í tölulið 1ea, I. kafla, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 131/2019 frá 8. maí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49 frá 20. júní 2019, bls. 127-133.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/2026 frá 19. desember 2018 um breytingu á IV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1221/2009 um frjálsa aðild fyrirtækja/stofnana að umhverfisstjórnunarkerfi Bandalagsins (EMAS).

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 5. tölul. 5. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 14. nóvember 2019.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.