Heilbrigðisráðuneyti

1062/2026

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1495/2025, um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu.

1. gr.

Á eftir 1. málsl. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Einnig gjöld fyrir þjónustu sem veitt er utan heilsugæslustöðva á grundvelli samnings skv. IV. kafla laga um sjúkratryggingar, sbr. 2. mgr. 17. gr. laganna.

2. gr.

Á eftir orðinu "undantekningum" í 1. tölul. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: þ.m.t. greiðslur vegna þjónustu sem veitt er utan heilsugæslustöðva á grundvelli samnings við Sjúkratryggingar Íslands.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir 1. málsl. 1. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Sé bólusetning framkvæmd utan heilsugæslustöðva á grundvelli samnings við Sjúkratryggingar Íslands skal sjúkratryggður greiða, auk komugjalds skv. 1. mgr. 8. gr., gjald miðað við kostnaðarverð/innkaupsverð fyrir hvern skammt bóluefnis.
  2. Á eftir 2. málsl. 2. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Hið sama gildir um bólusetningar sem framkvæmdar eru utan heilsugæslustöðva á grundvelli samnings við Sjúkratryggingar Íslands.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 1. mgr. 29. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 5. október 2026.

Alma D. Möller.

Sigurður Kári Árnason.

B deild - Útgáfudagur: 7. október 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica