Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 19. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 25. nóv. 2023

105/2020

Reglugerð um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

1. gr. Gildistaka tiltekinna gerða Evrópusambandsins.

Eftirfarandi gerðir sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, skulu hafa gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IX. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1675 frá 14. júlí 2016, um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849 með því að auðkenna áhættusöm þriðju lönd með annmarka í stefnu, sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 249/2018 frá 5. desember 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 6, 21. janúar 2019, bls. 69.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/105 frá 27. október 2017 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 að því er varðar að bæta Eþíópíu á skrána um þriðju lönd með mikla áhættu í töfluna í I. lið í viðaukanum, sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 251/2018 frá 5. desember 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49, 20. júní 2019, bls. 55.
  3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/212 frá 13. desember 2017 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849, að því er varðar að bæta Srí Lanka, Trínidad og Tóbagó, og Túnis í töfluna í I. lið í viðaukanum, sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 251/2018 frá 5. desember 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49, 20. júní 2019, bls. 57.
  4. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1467 frá 27. júlí 2018 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849, að því er varðar að bæta Pakistan í töfluna í I. lið í viðaukanum, sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 252/2018 frá 5. desember 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49, 20. júní 2019, bls. 59.
  5. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/855 frá 7. maí 2020 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849, að því er varðar að bæta Bahamaeyjum, Barbados, Botsvana, Kambódíu, Ghana, Jamaíku, Máritíus, Mongólíu, Mjanmar/Búrma, Níkaragva, Panama og Simbabve í töfluna í I. lið í viðaukanum, sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 252/2018 frá 5. desember 2018 og fjarlægja Bosníu og Hersegóvínu, Eþíópíu, Gvæjana, Laoska alþýðulýðveldið, Srí Lanka og Túnis úr töflunni. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62, 24. september 2020, bls. 276.
  6. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/37 frá 7. desember 2020 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849, að því er varðar að fella Mongólíu brott úr töflunni í I. lið í viðaukanum, sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 252/2018 frá 5. desember 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, 8. apríl 2021, bls. 329.
  7. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/229 frá 7. janúar 2022 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849, að því er varðar að bæta Búrkína Fasó, Cayman-eyjum, Haítí, Jórdaníu, Malí, Marokkó, Filippseyjum, Senegal og Suður-Súdan í töfluna í I. lið í viðaukanum, sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 252/2018 frá 5. desember 2018 og fjarlægja Bahamaeyjar, Botsvana, Gana, Írak og Máritíus úr töflunni. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26, 21. apríl 2022, bls. 345.
  8. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/410 frá 19. desember 2022 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849, að því er varðar að bæta Lýðveldinu Kongó, Gíbraltar, Mósambík, Tansaníu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum í töfluna í I. lið í viðaukanum, sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 252/2018 frá 5. desember 2018, og fella Níkaragva, Pakistan og Zimbabwe brott úr þeirri töflu. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37, 11. maí 2023, bls. 631.
  9. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1219 frá 17. maí 2023 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849, að því er varðar að bæta Nígeríu og Suður-Afríku í töfluna í I. lið í viðaukanum, sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 252/2018 frá 5. desember 2018 og fella Kambódíu og Marokkó brott úr þeirri töflu. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1219 er birt sem fylgiskjal II við reglugerð þessa.
  10. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2070 frá 18. ágúst 2023 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2016/1675 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/849, að því er varðar að bæta Kamerún og Víetnam í töfluna í I. lið í viðaukanum, sem vísað er til í IX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 252/2018 frá 5. desember 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83, 16. nóvember 2023, bls. 182.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á þeim gerðum sem taldar eru upp í 1. gr.

3. gr.

Listi yfir áhættusöm þriðju lönd er birtur sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

4. gr.

Ef ósamræmi er á milli íslensks og ensks texta gerða Evrópuþingsins og ráðsins skal skýra íslenska textann með hliðsjón af enska textanum.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 56. gr. laga um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018 og öðlast þegar gildi.

Við gildistöku reglugerðar þessarar fellur úr gildi reglugerð nr. 71/2019 um áhættusöm þriðju lönd vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.