Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1046/2016

Reglugerð um (30.) breytingu á reglugerð nr. 301/1995 um eftirlit með sáðvöru.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í III. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 9/2016, frá 5. febrúar 2016, öðlast eftirtaldar ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1955 frá 29. október 2015 um breytingu á I. og II. viðauka við tilskipun ráðsins 66/402/EBE um markaðssetningu sáðkorns. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 18, frá 31. mars 2016, bls. 163.

2. gr.

9. viðauka við reglugerð nr. 301/1995, með síðari breytingum, er breytt í samræmi við viðauka þessarar reglugerðar.

3. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 9. gr., 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Hún er sett til innleiðingar á framkvæmdartilskipun (ESB) 2015/1955, sbr. 1. gr., og fram­kvæmdar­tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2015/1168 frá 15. júlí 2015 um breytingu á til­skip­unum 2003/90/EB og 2003/91/EB um framkvæmdarráðstafanir með tilliti til 7. gr. tilskipunar ráðsins 2002/53/EB og 7. gr. tilskipunar ráðsins 2002/55/EB, í þeirri röð, að því er varðar þá eigin­leika sem athugun skal að lágmarki taka til og lágmarksskilyrði vegna athugana á tilteknum yrkjum nytja­plantna og grænmetistegunda í landbúnaði, sem tekin var inn í III. kafla I. viðauka við EES-samn­ing­inn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 9/2016, frá 5. febrúar 2016. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. nóvember 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.

VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica