Heilbrigðisráðuneyti

1042/2026

Reglugerð um (10.) breytingu á reglugerð nr. 481/2022 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um dýralyf.

1. gr.

Eftirfarandi töluliður bætist við 1. gr. reglugerðarinnar svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/758 frá 1. apríl 2026 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/17 að því er varðar að færa á skrá breytingu til að breyta samskiptaupplýsingum dreifingaraðila í skránni yfir breytingar sem eru ekki matsskyldar, sem vísað er til í lið 22b í XIII. kafla, II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 199/2026 frá 10. júlí 2026, öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 27. ágúst 2026, bls. 137-138.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 4. mgr. 74. gr. laga um dýralyf, nr. 14/2022, öðlast þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 14. september 2026.

Alma D. Möller.

Sigurður Kári Árnason.

B deild - Útgáfudagur: 29. september 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica