Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

1042/2022

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1378/2020 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1641 um innflutning á lifandi, kældum, frystum eða unnum samlokum, skrápdýrum, möttuldýrum og sæsniglum til manneldis frá Bandaríkjunum.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/158 frá 4. febrúar 2022 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/1641 um innflutning á lifandi, kældum, frystum eða unnum samlokum, skrápdýrum, möttuldýrum og sæsniglum til manneldis frá Bandaríkjunum.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/158 sem nefnd er í 1. gr. er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995, um matvæli.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli, með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 25. ágúst 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.