Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

1038/2017

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 693/2010 um kröfur um samræmda úthlutun og notkun á spurnarkóðum kögunarsvarratsjár fyrir samevrópska loftrýmið, og um breytingu á reglugerð nr. 732/2014 um kröfur um bil milli talrása í samevrópska loftrýminu.

1. gr.

4. gr. reglugerðar nr. 693/2010 breytist og orðast svo:

Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerðir:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 262/2009 frá 30. mars 2009 um kröfur um samræmda úthlutun og notkun á spurnarkóðum kögunarsvarratsjár (Mode S) fyrir samevrópska loftrýmið, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 108/2009 frá 22. október 2009. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 39, 15. júlí 2010, bls. 723.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2345 frá 14. desember 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 262/2009 og um framkvæmd á reglugerð (ESB) nr. 1079/2012 að því er varðar tilvísun til ICAO ákvæða, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 65/2017 frá 17. mars 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 31 frá 18. maí 2017, bls. 11.

2. gr.

Við 3. gr. reglugerðar nr. 732/2014 bætist eftirfarandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2345 frá 14. desember 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 262/2009 og um framkvæmd á reglugerð (ESB) nr. 1079/2012 að því er varðar tilvísun til ICAO ákvæða, sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 65/2017 frá 17. mars 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 31 frá 18. maí 2017, bls. 11.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a, 5. mgr. 75. gr. og 76. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 16. nóvember 2017.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.