Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

1037/2022

Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 507/2020 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1793 um tímabundna aukningu á opinberu eftirliti og neyðarráðstafanir sem gilda um komu tiltekinna vara frá tilteknum þriðju löndum.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 6. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/913 frá 30. maí 2022 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/1793 um tímabundna aukningu á opinberu eftirliti og neyðarráðstafanir sem gilda um komu tiltekinna vara frá tilteknum þriðju löndum inn í Sambandið og um framkvæmd reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 og (EB) nr. 178/2002.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2246 sem nefnd er í 1. gr. er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, öll með síðari breytingum.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 30. ágúst 2022.

Svandís Svavarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.