Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1031/2015

Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 560/2014 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 798/2008 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf, þaðan sem leyfður er innflutningur til Bandalagsins og umflutningur um Bandalagið á alifuglum og alifuglaafurðum, og um kröfur vegna heilbrigðisvottana fyrir dýr og dýraafurðir.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 32. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/243 frá 13. febrúar 2015 um breytingu á I. viðauka við reglugerð (EB) nr. 798/2008 að því er varðar færsluna fyrir Bandaríkin í skránni yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði, svæði eða hólf þaðan sem leyfður er innflutningur til Sambandsins eða umflutningur um Sambandið á tilteknum alifuglavörum í tengslum við alvarlega fuglainflúensu.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar, sem nefnd er í 1. gr., er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 13. nóvember 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Rebekka Hilmarsdóttir.

Eggert Ólafsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica