Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1023/2018

Reglugerð um (21.) breytingu á reglugerð nr. 978/2011 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 um aukefni í matvælum.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2018, frá 21. september 2018 öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/677 frá 3. maí 2018 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar notkun támatíns (E 957) sem bragðaukandi efni í tilteknum matvælaflokkum. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64, frá 27. september 2018, bls. 64.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/682 frá 4. maí 2018 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1333/2008 að því er varðar notkun pólýglýserólpólýrísínóleats (E 476) í ýrðar sósur. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67, frá 11. október 2018, bls. 772.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 8. nóvember 2018.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica