1014/2025
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1210/2021, um staðlað eyðublað fyrir samevrópska hæfisyfirlýsingu og stöðluð eyðublöð fyrir birtingu tilkynninga við opinber innkaup yfir ees viðmiðunarfjárhæðum.
1. gr.
3. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1780 frá 23. september 2019 um að taka upp stöðluð eyðublöð fyrir birtingu tilkynninga við opinber innkaup og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) 2015/1986, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 23 frá 31. mars 2021, bls. 97, með breytingum samkvæmt:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2303 frá 24. nóvember 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) 2019/1780 um að taka upp stöðluð eyðublöð fyrir birtingu tilkynninga við opinber innkaup, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 25 frá 21. mars 2024, bls. 613-651.
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2884 frá 20. desember 2023 um breytingu á reglugerð (ESB) 2019/1780 um að taka upp stöðluð eyðublöð fyrir birtingu tilkynninga við opinber innkaup, sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 28 frá 30. apríl 2025, bls. 620-674.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 122. gr. laga um opinber innkaup, nr. 120/2016, og öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 10. september 2025.
Þorsteinn Júlíus Árnason.
B deild - Útgáfudagur: 24. september 2025