Atvinnuvegaráðuneyti

1011/2026

Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 406/2010 um næringar- og heilsufullyrðingar er varða matvæli.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinnar ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtalin reglugerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2223 frá 4. nóvember 2025 um synjun leyfis fyrir heilsufullyrðingu er varðar matvæli og vísar hvorki til minnkunar á sjúkdómsáhættu né til þroskunar eða heilbrigðis barna. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 67/2026 frá 20. mars 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30, 7. maí 2026, bls. 108.

2. gr.

Reglugerð þess er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 2. september 2026.

F. h. r.

Ingvi Már Pálsson.

Donika Kolica.

B deild - Útgáfudagur: 16. september 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica