Atvinnuvegaráðuneyti

1009/2026

Reglugerð um (20.) breytingu á reglugerð nr. 674/2017 um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/176 frá 26. janúar 2026 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 142/2011 að því er varðar umbreytingarráðstafanir varðandi útflutning á kjöt- og beinamjöli sem eldsneyti til brennslu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 116/2026 frá 30. apríl 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36 frá 28. maí 2026, bls. 47.

Reglugerðin skal gilda með þeim aðlögunum sem fram koma í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 227/2025 og þeim takmörkunum sem leiða af I. kafla I. viðauka við EES-samninginn.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 29. gr. a laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, og 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 13. og 29. gr. a laga um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, og 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 15. september 2026.

F. h. r.

Kolbeinn Árnason.

Donika Kolica.

B deild - Útgáfudagur: 16. september 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica