1005/2026
Reglugerð um (26.) breytingu á reglugerð nr. 167/2015 um lyfjafræðilega virk efni og flokkun þeirra að því er varðar hámarksgildi leifa í matvælum úr dýraríkinu.
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr töluliður, 96. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1105 frá 3. júní 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 37/2010 að því er varðar flokkun efnisins ketóprófens með tilliti til hámarksgildis leifa í matvælum úr dýraríkinu. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 234/2025 frá 24. október 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 75 frá 27. nóvember 2025, bls. 322.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995, lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, og lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, nr. 66/1998.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 2. september 2026.
F. h. r.
Ingvi Már Pálsson.
B deild - Útgáfudagur: 16. september 2026