Atvinnuvegaráðuneyti

1004/2026

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 501/2020 um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2123 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 að því er varðar reglur um í hvaða tilvikum og hvaða skilyrði sannprófun auðkenna og eftirlit með ástandi tiltekinna vara má fara fram á eftirlitsstöðum og sannprófun skjala má fara fram annars staðar en á landamæraeftirlitsstöð (varðandi matvæli, fóður o.fl.).

1. gr.

1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sem vísað er til í I. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2123 frá 10. október 2019 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/625 að því er varðar reglur um í hvaða tilvikum og við hvaða skilyrði sannprófun auðkenna og eftirlit með ástandi tiltekinna vara má fara fram á eftirlitsstöðum og sannprófun skjala má fara fram annars staðar en á landamæraeftirlitsstöð. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 6/2020 frá 7. febrúar 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 23. apríl 2020, bls. 952.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/65 frá 31. október 2024 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2019/2123 að því er varðar við hvaða skilyrði sérstakt samræmt heilbrigðis- og innflutningsskjal er lagt fram fyrir sendingar sem fara frá landamæraeftirlitsstöð til eftirlitsstaðar þar sem sannprófun auðkenna og eftirlit með ástandi eiga að fara fram. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 230/2025 frá 24. október 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 9, frá 12. febrúar 2026, bls. 7.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995, og lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 2. september 2026.

F. h. r.

Ingvi Már Pálsson.

Donika Kolica.

B deild - Útgáfudagur: 16. september 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica