Atvinnuvegaráðuneyti

1003/2026

Reglugerð um (66.) breytingu á reglugerð nr. 672/2008 um hámarksgildi varnarefnaleifa í matvælum og fóðri.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/742 frá 30. mars 2026 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir sýflúfenamíð, fenasakín og nikótín í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 158/2026 frá 5. júní 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53 frá 20. ágúst 2026, bls. 182.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/751 frá 31. mars 2026 um leiðréttingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir flúpýradífúrón og kalíumfosfónat í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 159/2026 frá 5. júní 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53 frá 20. ágúst 2026, bls. 215.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/752 frá 31. mars 2026 um breytingu á IV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir Allium fistulosum, unnið, lýsat úr Willaertia magna, magnesíum hýdroxíð E528, Onobrychis viciifolia (toppespir) í formi þurrkaðra köggla og kjarna úr fræi Vitis vinifera L. (þrúgufræskjarni) í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 159/2026 frá 5. júní 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 53 frá 20. ágúst 2026, bls. 230.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2026/876 frá 21. apríl 2026 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir asetamípríð, aklónífen, deltametrín, oxaþíapíprólín og kalíum fosfónöt í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 195/2026 frá 10. júlí 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 27. ágúst 2026, bls. 110.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því á ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 2. september 2026.

F. h. r.

Ingvi Már Pálsson.

Donika Kolica.

B deild - Útgáfudagur: 16. september 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica