Atvinnuvegaráðuneyti

1002/2026

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 1237/2023 um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1698 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848 að því er varðar kröfur um málsmeðferð er varða viðurkenningu á eftirlitsyfirvöldum og eftirlitsaðilum sem eru til þess bær að annast eftirlit með lífrænt vottuðum rekstraraðilum og hópum rekstraraðila og með lífrænt ræktuðum vörum í þriðju löndum og að því er varðar reglur um eftirlit með þeim og eftirlit og a

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 3. tölul., svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/2651 frá 16. október 2025 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2021/1698 að því er varðar tilteknar viðmiðanir við að koma á fót skránni yfir áhættusöm þriðju lönd og áhættusamar vörur. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 197/2026 frá 10. júlí 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 27. ágúst 2026, bls. 135.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995, og 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995, og lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 2. september 2026.

F. h. r.

Ingvi Már Pálsson.

Donika Kolica.

B deild - Útgáfudagur: 16. september 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica