Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Breytingareglugerð

1002/2017

Reglugerð um breytingu á reglugerð um Launasjóð stórmeistara í skák, nr. 600/2011.

1. gr.

Á eftir 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Lágmarksviðmið um fjölda kappskáka árlega skal vera 70 kappskákir.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 7. gr. laga um launasjóð stórmeistara í skák, nr. 58/1990.

Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 6. nóvember 2017.

Kristján Þór Júlíusson.

Ásta Magnúsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.