999/2026
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.
1. gr.
Við 6. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/24 frá 19. desember 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar kröfur fyrir flugrekendur varðandi starfsemi á sviði flugafgreiðslu, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 219/2026 frá 10. júlí 2026. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 27. ágúst 2026, bls. 288.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 152. og 200. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 1. september 2026.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
B deild - Útgáfudagur: 16. september 2026