Atvinnuvegaráðuneyti

988/2025

Reglugerð um (28.) breytingu á reglugerð nr. 900/2018 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (esb) 2017/2470 um að koma á fót skrá sambandsins yfir nýfæði í samræmi við reglugerð evrópuþingsins og ráðsins (esb) 2015/2283 um nýfæði.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast þrír nýir töluliðir, 147., 148. og 149. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/89 frá 20. janúar 2025 um leyfi til að setja á markað duft af heilum lirfum Tenebrio molitor (mjölbjalla), sem hefur verið meðhöndlað með útfjólubláu ljósi, sem nýfæði og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 125/2025 frá 13. júní 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 4. september 2025, bls. 222.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/153 frá 29. janúar 2025 um leyfi til að setja á markað plönturnar Lemna minor og Lemna gibba sem nýfæði og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 126/2025 frá 13. júní 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 4. september 2025, bls. 279.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/167 frá 30. janúar 2025 um leyfi til að setja á markað glúkósýlhesperidín sem nýfæði og um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 126/2025 frá 13. júní 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 4. september 2025, bls. 284.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 9. september 2025.

F. h. r.

Bryndís Hlöðversdóttir.

Svava Pétursdóttir.

B deild - Útgáfudagur: 17. september 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica