Markmið reglugerðar þessarar er að:
Reglugerð þessi tekur til notkunar nemenda á símum og snjalltækjum á skólatíma í grunnskóla, bæði til tækja sem eru og eru ekki í eigu eða umsjá skólans. Reglugerðin tekur einnig til notkunar nemenda á símum og snjalltækjum á frístundaheimilum skv. 33. gr. a laga um grunnskóla og í tómstunda- og félagsstarfi sem er liður í daglegu starfi á skólatíma, sbr. 33. gr. sömu laga.
Í reglugerð þessari hafa eftirfarandi hugtök svofellda merkingu:
Um ábyrgð, réttindi og skyldur starfsfólks skóla, nemenda og foreldra vegna notkunar síma og snjalltækja á skólatíma gilda ákvæði reglugerðar um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum. Sömu ákvæði gilda jafnframt á frístundaheimilum, sbr. 3. mgr. 33. gr. a laga um grunnskóla.
Notkun síma og snjalltækja sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla eða frístundaheimilis er óheimil á skólatíma, sbr. þó 6. gr.
Símar og snjalltæki sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla eða frístundaheimilis skulu ekki vera aðgengileg á skólatíma, sbr. þó 6. gr. Grunnskóli eða frístundaheimili ákveður fyrirkomulag geymslu tækjanna með hliðsjón af aðstæðum þar sem þau eru ekki aðgengileg nemendum, s.s. í þar til gerðum skápum, hólfum eða geymslukössum. Geymsla tækis skal taka mið af skóladegi nemanda. Hver skóli og frístundaheimili skal móta sér nánari reglur um fyrirkomulag geymslu og afhendingu tækjanna í samráði við aðila skólasamfélagsins. Skal kynna reglurnar bæði fyrir nemendum og foreldrum.
Símar og snjalltæki sem höfð eru meðferðis í skóla og eru ekki í eigu eða umsjá skóla eða frístundaheimilis, eru á ábyrgð eiganda viðkomandi tækis nema þau hafi verið afhent skóla eða frístundaheimili til geymslu skv. 2. mgr. Við geymslu tækja skal skóli eða frístundaheimili gera viðeigandi varúðarráðstafanir til að koma í veg fyrir tjón, hvarf eða þjófnað. Um skaðabótaábyrgð fer samkvæmt almennum reglum skaðabótaréttar.
Síma og snjalltæki í eigu eða umsjá skóla eða frístundaheimilis skal eingöngu nota í kennslufræðilegum tilgangi eða vegna stuðningsþarfa nemenda.
Ákvæði 5. gr. á ekki við að því marki sem notkun síma eða snjalltækis, aðgangur að tækinu eða geymsla þess er nauðsynleg vegna stuðningsþarfa nemanda, t.d. vegna heilsufars, fötlunar, sérþarfa, sbr. 2. gr. reglugerðar um stuðning við nemendur með sérþarfir í grunnskóla, eða námsþarfa. Sama gildir þegar tæki er notað sem hjálpar- eða stuðningstæki, s.s. vegna tjáskipta, skynúrvinnslu, öryggis, skipulags eða annarrar nauðsynlegrar aðlögunar.
Tilkynna skal skóla eða frístundaheimili um stuðningsþarfir nemanda og hjálpar- eða stuðningstæki skv. 1. mgr. Skólastjóri eða forstöðumaður frístundaheimilis eða starfsmaður sem viðkomandi stjórnandi tilnefnir, skal í samráði við nemanda og foreldra ákveða nánara fyrirkomulag skv. 1. mgr.
Skólastjóra eða forstöðumanni frístundaheimilis er jafnframt heimilt að veita undanþágu frá 5. gr. ef um er að ræða önnur sérstök, tímabundin og rökstudd undantekningartilvik sem talin eru réttlætanleg með hliðsjón af þörfum nemenda eða í samráði við nemendur og eru til þess fallin að ná markmiðum reglugerðar þessarar. Ákvörðunin skal skráð og rökstudd.
Skólastjóri eða forstöðumaður frístundaheimilis skal skrá upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að tryggja framkvæmd undanþága að gættum ákvæðum laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og 47. gr. a. laga um grunnskóla.
Skólastjóri og forstöðumaður frístundaheimilis hafa forgöngu um og tryggja innleiðingu og framkvæmd reglugerðar þessarar í skólanum eða frístundaheimilinu. Leitast skal við að ná sem víðtækastri sátt milli aðila skólasamfélagsins um innleiðingu og framkvæmd reglugerðarinnar.
Skólastjóri skal kynna innleiðingu og framkvæmd reglugerðarinnar fyrir skólaráði, þar á meðal fyrirkomulag geymslu og afhendingar skv. 2. mgr. 5. gr. og ópersónugreinanlegt yfirlit yfir framkvæmd og umfang undanþága sem veittar eru á grundvelli 6. gr.
Nemendum skal veitt tækifæri til að taka þátt í innleiðingu og framkvæmd reglugerðarinnar, þar á meðal útfærslu fyrirkomulags geymslu og afhendingar, skv. 2. mgr. 5. gr., mati á áhrifum innleiðingarinnar og framkvæmdarinnar á nemendur og mótun leiða til að koma til móts við þá, t.d. með afþreyingu í frímínútum. Taka skal réttmætt tillit til skoðana nemenda í samræmi við aldur og þroska.
Mat á innleiðingu og framkvæmd reglugerðarinnar skal tengjast öðru innra mati skólans.
Ráðuneytið gefur út leiðbeiningar um framkvæmd reglugerðarinnar að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og aðila skólasamfélagsins.
Um viðbrögð við brotum á reglum og málsmeðferð þar að lútandi gilda ákvæði reglugerðar um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 6. mgr. 14. gr. og 4. mgr. 30. gr. laga um grunnskóla, nr. 91/2008, sbr. 3. mgr. 33. gr. a. sömu laga, öðlast þegar gildi.
Frá og með 1. janúar 2027 skal ráðuneytið fylgja eftir framkvæmd reglugerðar þessarar.
Reglugerð þessa skal endurskoða innan þriggja ára frá gildistöku. Við endurskoðunina skal m.a. hafa hliðsjón af fenginni reynslu og þróun rannsókna og þekkingar.
Mennta- og barnamálaráðuneytinu, 27. ágúst 2026.
Inga Sæland.
Ásdís Halla Bragadóttir.
B deild - Útgáfudagur: 1. september 2026