Við 1. mgr. 52. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi stafliður:
æ. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1255 frá 3. maí 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1998 að því er varðar ítarlegar ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 102/2025 frá 8. maí 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 42 frá 3. júlí 2025, bls. 805-822.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 167. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 20. ágúst 2025.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
Vala Hrönn Viggósdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 3. september 2025