Fara beint í efnið

Prentað þann 19. mars 2024

Breytingareglugerð

93/2017

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1170/2015 um fiskeldi.

1. gr.

Bráðabirgðaákvæði IX við reglugerðina orðast svo:

Rekstrarleyfishafar í sjókvíaeldi sem ekki voru í rekstri fyrir 11. desember 2015 fá frest fram til 15. mars 2017 til að skila inn stöðvarskírteini samkvæmt 15. gr. Matvælastofnun er heimilt með þeim fyrirvara sem kveðið er á um í þessu ákvæði að staðfesta gildi rekstrarleyfis án þess að fyrir liggi stöðvarskírteini og rekstrarleyfishöfum er heimilt að hefja starfsemi á grundvelli útgefins rekstrarleyfis án þess að fyrir liggi stöðvarskírteini. Hafi rekstrarleyfishafi í sjókvíaeldi sem ekki var í rekstri fyrir 11. desember 2015 ekki skilað inn stöðvarskírteini samkvæmt 15. gr. fyrir 15. mars 2017 fellur leyfi hans úr gildi.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 71/2008, um fiskeldi, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 31. janúar 2017.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Ásta Einarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.