Fjármála- og efnahagsráðuneyti

918/2026

Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð um fjárhagslegar viðmiðanir, nr. 162/2021.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 1. gr. reglugerðarinnar:

  1. Í stað orðanna "og nr. 324/2023 frá 8. desember 2023" í inngangsmálslið greinarinnar kemur: nr. 324/2023 frá 8. desember 2023 og nr. 96/2026 frá 20. mars 2026.
  2. Á eftir dagsetningunni "22. september 2022" í 10. tölul. kemur: og þeim breytingum sem leiðir af framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1775 frá 28. ágúst 2025 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2020/1818 að því er varðar skilgreininguna á bönnuðum vopnum, sem er birt í fylgiskjali með reglugerð þessari.

2. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt fylgiskjal, sem er birt með reglugerð þessari.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í e-lið 1. mgr. 13. gr. laga um fjárhagslegar viðmiðanir, nr. 7/2021, öðlast þegar gildi.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 19. ágúst 2026.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Steinar Örn Steinarsson.

B deild - Útgáfudagur: 26. ágúst 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica