Utanríkisráðuneyti

911/2025

Um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi líbíu, nr. 887/2015. REGLUGERÐ um breyting á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Líbíu, nr. 887/2015.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:

1.43 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2025/814 frá 23. apríl 2025 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2015/1333 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu, sbr. fylgiskjal 1.43.

2.41 Reglugerð ráðsins (ESB) 2025/1813 frá 25. apríl 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) 2016/44 um þvingunaraðgerðir með tilliti til ástandsins í Líbíu, sbr. fylgiskjal 2.41.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 8. júlí 2025.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Martin Eyjólfsson.

B deild - Útgáfudagur: 25. ágúst 2025


Þetta vefsvæði byggir á Eplica