Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
14.1 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/1173 frá 28. maí 2026 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2024/385 um að koma á þvingunaraðgerðum gegn þeim sem styðja ofbeldisverk Hamas-samtakanna og samtakanna Palestínskt íslamskt Jihad (PIJ), greiða fyrir þeim eða gera þau möguleg, sbr. fylgiskjal 14.1.
15.1 Reglugerð ráðsins (ESB) 2026/1175 frá 28. maí 2026 um breytingu á reglugerð (ESB) 2024/386 um að koma á þvingunaraðgerðum gegn þeim sem styðja ofbeldisverk Hamas-samtakanna og samtakanna Palestínskt íslamskt Jihad (PIJ), greiða fyrir þeim eða gera þau möguleg, sbr. fylgiskjal 15.1.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 19. ágúst 2026.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Martin Eyjólfsson.
B deild - Útgáfudagur: 20. ágúst 2026