Utanríkisráðuneyti

889/2026

Reglugerð um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Íran, nr. 384/2024.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

5.5   Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/1892 frá 30. júlí 2026 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2023/1532 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu og aðgerða Írans til að grafa undan frelsi til siglinga í Austurlöndum nær, sbr. fylgiskjal 5.5.

6.4   Reglugerð ráðsins (ESB) 2026/1891 frá 30. júlí 2026 um breytingu á reglugerð (ESB) 2023/1529 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu og aðgerða Írans til að grafa undan frelsi til siglinga í Austurlöndum nær, sbr. fylgiskjal 6.4.

2. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 11. ágúst 2026.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Martin Eyjólfsson.

B deild - Útgáfudagur: 12. ágúst 2026


Þetta vefsvæði byggir á Eplica