Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2371 frá 23. nóvember 2022 um alvarlegar heilsufarsógnir sem ná yfir landamæri og niðurfellingu ákvörðunar nr. 1082/2013/ESB, með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2024 frá 5. júlí 2024, um breytingu á bókun 31 um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins sem og bókun 37 sem inniheldur skrána sem kveðið er á um í 101. gr. við EES-samninginn, sbr. einnig bókun 1 um altæka aðlögun við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/2371 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 83 frá 14. nóvember 2024, bls. 284.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 5. mgr. 40. gr. sóttvarnalaga, nr. 40/2026, öðlast gildi 1. september 2026.
Heilbrigðisráðuneytinu, 9. júlí 2026.
F. h. r.
Ásta Valdimarsdóttir.
Guðlaug Einarsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 27. júlí 2026