Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 264/2025 frá 5. desember 2025, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/882 frá 14. maí 2025 um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1378 að því er varðar viðurkenningu á tilteknum eftirlitsaðilum, í samræmi við 46. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/848, sem til þess bærum til að inna af hendi eftirlit og gefa út vottorð um lífræna framleiðslu í þriðju löndum vegna innflutnings á lífrænt ræktuðum vörum inn í Sambandið. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10 frá 12. febrúar 2026, bls. 248.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995, og 7. gr. laga um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995, og lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994. Reglugerðin öðlast þegar gildi..
Atvinnuvegaráðuneytinu, 29. maí 2026.
F. h. r.
Kolbeinn Árnason.
Donika Kolica.
B deild - Útgáfudagur: 20. júlí 2026