768/2025
Um breytingu á reglugerð um stofnframlög ríkis og sveitarfélaga, húsnæðissjálfseignarstofnanir og almennar íbúðir, nr. 183/2020. REGLUGERÐ um breytingu á reglugerð um stofnframlög ríkis og sveitarfélaga, húsnæðissjálfseignarstofnanir og almennar íbúðir, nr. 183/2020.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. málsl. 1. mgr. 12. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað fjárhæðarinnar "398.000 kr." kemur: 409.000 kr.
- Í stað fjárhæðarinnar "9.200.000 kr." kemur: 9.400.000 kr.
- Í stað fjárhæðarinnar "15.800.000 kr." kemur: 16.300.000 kr.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 10. mgr. 11. gr. og 1. mgr. 27. gr. laga um almennar íbúðir, nr. 52/2016, öðlast þegar gildi.
Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, 20. júní 2025.
B deild - Útgáfudagur: 4. júlí 2025