760/2025
Um (57.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (esb) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hluta þeirra þaðan sem heimilt er að flytja inn dýr, kímefni og afurðir úr dýraríkinu til sambandsins í samræmi við reglugerð evrópuþingsins og ráðsins (esb) 2016/429. REGLUGERÐ um (57.) breytingu á reglugerð nr. 580/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/404 um skrár yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða hlu
1. gr.
Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, 134. og 135. tölul., svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1085 frá 22. maí 2025 um breytingu á V. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1200 frá 12. júní 2025 um breytingu á V., XIII. og XIV. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/404 að því er varðar færslurnar fyrir Kanada, Esvatíní, Breska konungsríkið og Bandaríkin í skránum yfir þriðju lönd, yfirráðasvæði eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af alifuglum, kímefnum úr alifuglum, nýju kjöti af nautgripum, öldum og villtum hóf- og klaufdýrum sem eru veiðidýr og nýju kjöti af alifuglum og veiðifuglum til Sambandsins.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerðirnar sem nefndar er í 1. gr. eru birtar á ensku í C-deild Stjórnartíðinda, sem fylgiskjöl við auglýsingu nr. 20/2025.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995, lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, og lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 26. júní 2025.
F. h. r.
Bryndís Hlöðversdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 3. júlí 2025