Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
5.5 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2026/762 frá 30. mars 2026 um breytingu á ákvörðun 2010/413/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Íran, sbr. fylgiskjal 5.5.
6.4 Reglugerð ráðsins (ESB) 2026/759 frá 30. mars 2026 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 267/2012 um þvingunaraðgerðir gegn Íran og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) nr. 961/2010, eins og hún var leiðrétt í Stjórnartíðindum ESB L, 2026/90314, þann 23. apríl 2026, sbr. fylgiskjal 6.4.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 11. júní 2026.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Martin Eyjólfsson.
B deild - Útgáfudagur: 22. júní 2026