Við bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði II. kafla, um heildarafla, frádrátt og úthlutun, er auknu aflamagni ráðstafað til strandveiða til viðbótar við úthlutað aflamagn á fiskveiðiárinu 2025/2026. Viðbótaraflamagn skal vera 2.700 tonn af óslægðum þorski.
Eftir fiskveiðiárið 2025/2026 skal viðbótaraflamagni samkvæmt 1. mgr. jafnað gagnvart því aflamagni sem dregið verður frá heildaraflamarki skv. 3. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, og skal að fullu jafnað eigi síðar en á fiskveiðiárinu 2029/2030.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 3., 6. gr. a. og 16. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sbr. lög nr. 46/2026, um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (jöfnunarheimild). Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvegaráðuneytinu, 18. júní 2026.
Hanna Katrín Friðriksson.
Hallveig Ólafsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 19. júní 2026