Eftirfarandi starfsemi er bætt við í stafrófsröð við viðauka reglugerðarinnar:
Jarðbor undir 1 MW.
Osteópati.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr.
1. málsl. 8. gr. skal eftirleiðis orðast svo:
Heilbrigðisnefnd og Umhverfis- og orkustofnun fara með eftirlit með skráningarskyldum atvinnurekstri, þ. á m. að starfsemi sé rétt skráð.
Á eftir orðinu "Heilbrigðisnefnd" í 2. mgr. 9. gr. kemur: eða Umhverfis- og orkustofnun.
Á eftir orðinu "heilbrigðisnefnd" í 1. mgr. og tvisvar í 2. mgr. 11. gr. kemur: eða Umhverfis- og orkustofnun.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 1. mgr. 8. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. og 1. og 20. tölul. 5. gr. laganna. Reglugerðin er sett að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga um hlutverk heilbrigðisnefnda við framkvæmd reglugerðar þessarar.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 11. júní 2026.
Jóhann Páll Jóhannsson.
Stefán Guðmundsson.
B deild - Útgáfudagur: 12. júní 2026