Í stað orðsins "Umhverfis- og auðlindaráðherra" í 4. gr. kemur: Ráðherra.
Í stað orðsins "Umhverfisstofnun" í 4. gr. og sama orðs hvarvetna annars staðar í reglugerðinni kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Umhverfis- og orkustofnun.
Á eftir 13. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein, 13. gr. a, svohljóðandi, ásamt fyrirsögn:
Tilkynningarskylda færanlegrar starfsemi.
Rekstraraðili færanlegrar starfsemi, þ.m.t. jarðboranir, færanlegar malbikunarstöðvar og steypustöðvar, sem er starfsleyfis- eða skráningarskyld samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, skal tilkynna eftirlitsaðila um fyrirhugað verk að jafnaði eigi síðar en fjórum vikum fyrir áætlað upphaf verks.
Í tilkynningu skal koma fram:
Umhverfis- og orkustofnun skal staðfesta móttöku tilkynningar.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 5. gr. og 14. gr. a laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 11. júní 2026.
Jóhann Páll Jóhannsson.
Stefán Guðmundsson.
B deild - Útgáfudagur: 12. júní 2026