Utanríkisráðuneyti

626/2014

Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Súdan og Suður-Súdan. - Brottfallin

1. gr.

Almenn ákvæði.

Reglugerð þessi er sett til þess að framfylgja:

a)

ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, sem eru settar á grundvelli 41. gr. VII. kafla stofnskrár Sameinuðu þjóðanna,

b)

ákvörðunum framkvæmdanefnda þess um þvingunaraðgerðir og/eða

c)

ákvæðum um þvingunaraðgerðir sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunar­samtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993, eftir því sem við á.



Í þeim gerðum sem vitnað er til í 2. gr., og öðrum ákvæðum reglugerðar þessarar, kemur fram um hvaða ályktanir öryggisráðsins, framkvæmdanefnda þess eða ályktanir Evrópusambandsins er að ræða, þær þvingunaraðgerðir sem koma eiga til framkvæmda og gegn hverjum þær beinast, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

2. gr.

Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi gerðir Evrópusambandsins um þvingunaraðgerðir skulu öðlast gildi hér á landi með þeirri aðlögun sem getið er um í 3. gr. Gerðirnar, ásamt viðaukum, eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa:

  1. Fylgiskjal 1: Ákvörðun ráðsins 2011/423/SSUÖ frá 18. júlí 2011 um þving­unar­aðgerðir gegn Súdan og Suður-Súdan og um niðurfellingu sameigin­legrar afstöðu 2005/411/SSUÖ.
  2. Fylgiskjal 2: Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2014/40/SSUÖ frá 28. janúar 2014 um framkvæmd ákvörðunar 2011/423/SSUÖ frá 18. júlí 2011 um þvingunar­aðgerðir gegn Súdan og Suður-Súdan.
  3. Fylgiskjal 3: Reglugerð ráðsins (EB) nr. 131/2004 frá 26. janúar 2004 um tilteknar þving­unar­aðgerðir að því er varðar Súdan.
  4. Fylgiskjal 4: Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1353/2004 frá 26. júlí 2004 um breytingu á reglu­gerð (EB) nr. 131/2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Súdan.
  5. Fylgiskjal 5: Reglugerð ráðsins (EB) nr. 838/2005 frá 30. maí 2005 um breytingu á reglu­gerð (EB) nr. 131/2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Súdan.
  6. Fylgiskjal 6: Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 1215/2011 frá 24. nóvember 2011 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 131/2004 um tilteknar þvingunaraðgerðir að því er varðar Súdan.
  7. Fylgiskjal 7: Reglugerð ráðsins (EB) nr. 1184/2005 frá 18. júlí 2005 um að leggja á til­teknar, sér­stakar þvingunaraðgerðir sem beint er að tilteknum aðilum sem torvelda friðar­ferlið og brjóta alþjóðleg lög í átökunum í Darfúr-héraði í Súdan.
  8. Fylgiskjal 8: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 760/2006 frá 18. maí 2006 um breyt­ingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1184/2005 um að leggja á til­teknar, sérstakar þving­unar­aðgerðir sem beint er að tilteknum aðilum sem tor­velda friðarferlið og brjóta alþjóðleg lög í átökunum í Darfúr-héraði í Súdan.
  9. Fylgiskjal 9: Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 970/2007 frá 17. ágúst 2007 um breyt­ingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1184/2005 um að leggja á til­teknar, sérstakar þving­unar­aðgerðir sem beint er að tilteknum aðilum sem tor­velda friðarferlið og brjóta alþjóðleg lög í átökunum í Darfúr-héraði í Súdan.
  10. Fylgiskjal 10: Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) nr. 75/2014 frá 27. janúar 2014 um breyt­ingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 1184/2005 um að leggja á til­teknar, sérstakar þving­unar­aðgerðir sem beint er að tilteknum aðilum sem tor­velda friðarferlið og brjóta alþjóðleg lög í átökunum í Darfúr-héraði í Súdan.

Viðaukar við framangreindar gerðir eru birtir á frummáli, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um fram­kvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

Framangreindar gerðir binda einstaklinga, lögaðila, rekstrareiningar og stofnanir án frekari lögfestingar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði um viðskiptabann, landgöngubann og frystingu fjármuna.

3. gr.

Aðlögun.

Gerðir skv. 2. gr. skulu aðlagaðar með eftirfarandi hætti:

a)

ákvæði varðandi ríkisborgara, einstaklinga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofn­anir, tungumál, yfirráðasvæði eða aðildarríki Evrópusambandsins ("EB", "ESB", "banda­lagsins" eða "sameiginlega markaðarins") eiga við um íslenska ríkisborgara, einstak­linga, fyrirtæki, stjórnvöld, opinberar stofnanir, tungumál, yfirráðasvæði eða Ísland, eftir því sem við á;

b)

ákvæði um tilkynningar eða skýrslugerðir til aðildarríkja Evrópusambandsins eða stofnana gilda ekki. Hið sama á við um ákvæði um gildistöku eða hvenær gerðir skuli koma til framkvæmda;

c)

tilvísanir í gerðir, sem eru hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samningsins), eiga við um þau ákvæði íslensks réttar sem innleiða þær gerðir, eftir því sem við á;

d)

tilvísanir í gerðir, sem eru ekki hluti EES-samningsins, eiga við um hliðstæð ákvæði íslensks réttar, eftir því sem við á, þ.m.t. ákvæði tollalaga nr. 88/2005;

e)

tilvísanir í eldri ákvæði um þvingunaraðgerðir Evrópusambandsins eiga við um eldri íslensk ákvæði, eftir því sem við á;

f)

vefsetur með upplýsingum um lögbær stjórnvöld á Íslandi er: www.utn.is/ thvingunaradgerdir.



4. gr.

Tilkynning.

Birting lista yfir aðila, sem nefndir eru í gerðum skv. 2. gr., skal skoðast sem tilkynning til þeirra um að þær þvingunaraðgerðir sem kveðið er á um í gerðunum beinist gegn þeim og er þeim bent á að þeir geti sótt um vissar undanþágur til utanríkisráðuneytisins eða óskað eftir afskráningu af listum, telji þeir sig ranglega skráða.

5. gr.

Undanþágur frá þvingunaraðgerð.

Ráðherra getur veitt undanþágur frá þvingunaraðgerðum, sem gripið hefur verið til, af mannúðarástæðum eða öðrum ástæðum. Hann getur m.a. heimilað að efndir séu samn­ingar eða að fullnægt sé öðrum réttindum og skyldum, sem fara í bága við reglu­gerð þessa, en stofnuðust fyrir gildistöku hennar.

6. gr.

Viðurlög.

Hver sá sem brýtur gegn þvingunaraðgerðum skv. lögum nr. 93/2008 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða skal sæta viðurlögum skv. 10. gr. laganna, nema þyngri viðurlög liggi við samkvæmt öðrum lögum.

7. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um alþjóðlegar þvingunaraðgerðir varðandi Súdan nr. 156/2009.

Utanríkisráðuneytinu, 16. júní 2014.

Gunnar Bragi Sveinsson.

Einar Gunnarsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica