Óperan er sérhæfð eining innan Þjóðleikhússins og starfar á grundvelli laga nr. 165/2019. Hún hefur það hlutverk að efla og miðla óperulist á Íslandi, flytja verk af háum listrænum gæðum, sinna sögulegri arfleifð óperulista og vera vettvangur fyrir nýsköpun og fræðslu. Óperan skal leitast við að flytja árlega að lágmarki eitt íslenskt verk og styðja við frumsköpun og þróun listformsins.
Heimilt er óperunni að setja upp sýningar í því sem kann að henta hverju sinni en skal að jafnaði sett upp eitt verkefni í Þjóðleikhúsi og eitt í Hörpu. Aðalaðsetur óperunnar verður í Hörpu, þ.m.t. vinnuaðstaða fyrir æfingar óperuverkefna og lykilstarfsfólk óperunnar.
Lögð skal áhersla á öflugt fræðslustarf og samstarf við listastofnanir, sveitarfélög og sjálfstæða hópa á landsbyggðinni, þar á meðal Menningarfélag Akureyrar. Óperan skal einnig leitast við að tengjast sjálfstæðum hópum í óperustarfsemi, bæði í eigin verkefnum og samstarfsverkefnum.
Óperustjóri er embættismaður skipaður af ráðherra en heyrir í skipuriti undir þjóðleikhússtjóra. Óperustjóri hefur sjálfstæði í stjórnun þess sem snýr að óperunni í samræmi við samþykktar áætlanir. Hann ber ábyrgð á og stýrir listrænni stefnu og verkefnavali en fylgir stefnu og meginlínum Þjóðleikhússins og hefur samráð við þjóðleikhússtjóra um stærri ákvarðanir. Óperustjóra er heimilt að setja saman sitt eigið listráð sér til ráðgjafar.
Óperustjóri vinnur fjárhags- og starfsáætlanir í samráði við þjóðleikhússtjóra og framkvæmdastjóra Þjóðleikhússins og vinnur eftir þeim. Óperustjóri er hluti af listrænu stjórnendateymi Þjóðleikhúss og tekur þátt í innra starfi eins og skipulag Þjóðleikhússins gerir ráð fyrir og samkvæmt óskum þjóðleikhússtjóra. Óperustjóri hefur samráð við þjóðleikhússtjóra er varðar samskipti við þjóðleikhúsráð og ráðuneyti. Áætlanir óperunnar sem og allar meiriháttar ákvarðanir um rekstur, skulu kynntar þjóðleikhúsráði með öðrum áætlunum leikhússins. Óperustjóri situr fundi þjóðleikhúsráðs þegar mál óperunnar eru til umfjöllunar.
Óperustjóri gerir samninga fyrir hönd óperunnar, ber ábyrgð á daglegum rekstri hennar og velur starfsfólk í samræmi við samþykktar áætlanir, þar á meðal tónlistarstjóra, framleiðslustjóra óperuverkefna, söngvara og kór, og ræður hvernig vinnu þeirra er háttað. Starfsfólk óperunnar er starfsfólk Þjóðleikhússins. Óperustjóri velur einnig listrænt teymi fyrir allar uppfærslur óperunnar. Óperustjóri hefur samráð við þjóðleikhússtjóra í þeim tilgangi að auka samræmingu við verkefni og samlegð við aðra starfsemi Þjóðleikhússins.
Fjárveitingin til óperustarfsemi skal vera skýrt tilgreind í fjárlögum með sérstöku fjárlagaviðfangi undir Þjóðleikhúsinu. Þjóðleikhússtjóri í samráði við óperustjóra áætlar kostnað vegna stoðþjónustu og skal hann greiddur af fjárveitingu óperunnar. Þessi kostnaður skal kynntur þjóðleikhúsráði árlega. Óperunni er heimilt að hafa eigin tekjur og taka aðgangseyri.
Unnið skal að listrænni og fjárhagslegri samlegð. Stoðdeildir Þjóðleikhússins skulu samnýttar í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun óperunnar. Hverju sinni er metið hvernig framleiðslu- og tæknideildir Þjóðleikhússins koma að framleiðslu verkefna óperunnar með sem hagkvæmustum hætti. Þjóðleikhússtjóri ber ábyrgð á ráðningu starfsfólks til að styrkja stoðdeildir Þjóðleikhússins þannig að þær geti sinnt verkefnum óperunnar án þess að það komi niður á öðrum verkefnum. Ráðningar skulu vera í samræmi við fjárhagsáætlanir og í samráði við óperustjóra þar sem við á.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 20. gr. laga um sviðslistir nr. 165/2019 og öðlast þegar gildi.
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, 28. maí 2026.
Logi Már Einarsson.
Sigrún Brynja Einarsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 1. júní 2026